Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásgrím Halldórsson rak út í höfnina í Skagen

Read Full Article →

Ásgrímur Halldórsson, nýtt uppsjávarskip Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði, sem er í smíðum hjá Karstensens skipasmíðastöðinni á Skagen í Danmörku, slitnaði frá bryggju þegar mikið óveður gekk yfir Jótland á páskadag. Skipið lá við Tollbryggjuna í Skagen en sleit sig laust og rak út í höfnina. Það tókst að koma festingum úr landi út í skipið og var það í gær tengt með reipum við Stálbryggjuna í Skagen. Stormurinn Dave gekk yfir á páskadag og munu margir minnast hans sem eins af þeim ofsafengnustu á síðari tímum á þessum slóðum. Þótt enn sé „ferskur“ vindur er versta hættan liðin hjá. Engu að síður hvetja yfirvöld áfram til varúðar, þar sem lausir hlutir og skemmdar byggingar geta enn valdið hættu. Tré, girðingar, ílát, ljósastaurar, skilti, þakflísar og sólhlífar er meðal þess sem „Dave“ hefur komist í snertingu við auk þess að slíta Ásgrím Halldórsson frá bryggju. Þó að stormurinn hafi valdið lögreglunni annríki og margir í Norður-Jótlandi hafi orðið fyrir tjóni á húsum, þökum, trjám og girðingum, er fjöldi þeirra sem hafa slasast takmarkaður. Þetta segir lögreglustjórinn Lau Larsen hjá lögreglunni á Norður-Jótlandi við TV2 Nord. Að hans sögn er heildarmyndin sú að stormurinn hefur ekki haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi fólks. „Í heildina slapp við tiltölulega vel. Við höfum aðeins lent í fáeinum tilfellum þar sem fólk hefur slasast og meiðslin eru minniháttar – oftast vegna þess að fólk hefur orðið fyrir hlutum sem hafa fokið, segir hann.

Share this article