„Við erum bara komnir á fiskitroll aftur eftir þessar humarrannsóknir og erum bara nýkomnir út,“ segir Þorsteinn Guðmundsson, skipstjóri Skinneyjar SF 20 á Hornafirði. Skinney tók ásamt Drangavík VE úr Vestmannaeyjum þátt í humarrannsóknum Hafrannsóknastofnunar nú í maí. Eftir hrun í humarstofninum á síðasta áratug hafa veiðar á humri alfarið verið bannaðar frá árinu 2022. Nýliðun í vestari dýpunum Þorsteinn segir að farnir hafi verið þrír humartúrar á Skinney. Sjálfur hafi hann aðeins farið í þann síðasta, sem lokið hafi síðastliðinn mánudag. „Það var eitthvað í vestari dýpunum. Þar er nýliðun,“ segir Þorsteinn Smár og þarf meiri tíma Spurður hvort menn séu eftir þetta orðnir bjartsýnir á að það fari að verða hægt að hefja humarveiði að nýju innan fárra ára bendir Þorsteinn á að humarinn sem nú hafi fengist sé smár. „Hann þarf einhvern tíma til að vera í góðu horfi en það var að minnsta kosti eitthvað af honum á Breiðamerkurdýpi og Skeiðarárdýpi,“ segir hann. Bland fyrir vinnsluna Nú er Skinney aftur snúin í sitt hefðbundna hlutverk. „Við erum bara að veiða blandaðan afla fyrir vinnsluna,“ segir Þorsteinn. Þessi veiði hafi gengið ágætlega fram að hrygningarstoppi. „Við erum ekki í neinni mok þorskveiði,“ segir Þorsteinn. Tekin hafi verið tvö höl þegar rætt er við hann í gær, þriðjudag. „Það er blandað hjá okkur; ýsa, ufsi og þorskur sem við erum komnir með núna.“ Stopp í ágúst Fram undan er síðan að halda áfram veiðum fram að verslunarmannahelgi. „Við stoppum í heilan mánuð í ágúst. Þessi þrjú skip hjá fyrirtækinu stoppa í mánuð hvert fyrir sig og við róterum því svo við séum ekki stopp á sama tíma. Í fyrra stoppuðum við í júní eftir sjómannadaginn,“ segir hann. Nýtt skip, Ásgrímur Halldórsson, var að bætast við flota Hornfirðinga fyrr í þessum mánuði. „Þetta er glæsifley. Það er frekar grunnrist og sérútbúið til að fara um ósinn,“ segir Þorsteinn. Innsiglingin eilífðarverkefni Að halda Grynnslunum svokölluðu í innsiglingunni við Höfn færum skipum er auðvitað eins og kunnugt er eilífðarverkefni vegna stanslauss sandburðar. Reglulega er dælt úr ósnum og sæta þarf lagi við vissar aðstæður. „Við þurfum að fara þarna um þegar það er kvika og er þá miðað við ákveðna ölduhæð,“ segir Þorsteinn. Helst þurfi að vera nálægt flóði. „En þegar það er slétt getum við náttúrlega farið hvenær sem er.“