Innlent | Sunnudagsblað | 3.5.2026 | 23:17 Ekki bara glimmer og kjólar Marinó Máni hvetur stráka tli að prófa listskauta. mbl.is/Karítas Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki M arinó Máni er átján ára menntaskólanemi í MH og eini strákurinn á sínum aldri sem æfir listskauta. Marinó segir sárvanta fleiri stráka í íþróttina sem sé alveg jafnt fyrir stráka og stelpur. Marinó æfir nánast alla daga og þjálfar einnig börn, unglinga og fullorðna hjá félagi sínu Fjölni. Vantar fleiri stráka „Ég byrjaði frekar seint að æfa listskauta, um tólf ára gamall. Mamma sá tilboð á námskeiði og ég ákvað að prófa. Það fyrsta sem þjálfarinn spurði var hvort ég kynni á skauta; honum fannst ég líta þannig út. Ég fór í byrjendahóp í skautaskólanum og var þar í mánuð en venjulega eru krakkar þar í tvö ár. Ég var mjög fljótur að læra og fór þá upp í keppnishóp fjögur. Eftir það hætti ég aldrei,“ segir Marinó, en hann hefur nú æft listskauta í sex ár. „Mér fannst þetta strax mjög skemmtilegt. Ég held mér hafi verið boðið upp í keppnishóp svona fljótt af því að það vantar stráka í þessa íþrótt á Íslandi. Fyrir utan þá sem eru yngri en sjö ára og þá sem eru í Special Olympics-hópi, þá er ég eini strákurinn á landinu af þeim sem keppa á mótum,“ segir hann. Marinó elskar að vera á svellinu. mbl.is/Karítas Marinó er nú orðinn þjálfari og vill endilega fá fleiri stráka í íþróttina. „Ég vil endilega hvetja stráka til að koma og prófa. Margir sem ímynda sér listskauta sjá fyrir sér stelpur, glimmer og kjóla. En þessi íþrótt er alveg eins fyrir stráka og margir sem fylgjast með Ólympíuleikum fylgjast með körlunum á skautum, enda eru þeir að gera erfiðustu æfingarnar,“ segir hann og bætir við að Fjölnir fékk styrk til að geta boðið strákum hálfa önn fría núna næsta haust. Þá geta strákar komið og prófað frítt. Gífurlega tæknilegt sport „Þetta er bæði listræn og tæknileg íþrótt. Maður þarf að vera með túlkun í dansinum en meirihlutann af stigum fær maður fyrir að stökkva og gera þessa erfiðu hluti; að hoppa upp í loft og gera snúninga. Liðleiki skiptir líka máli,“ segir hann. „Þegar fólk horfir á listskauta þá virðist það auðvelt en þetta er gífurlega tæknilegt. Ég ætti að æfa ellefu sinnum í viku. Ég næ sjö æfingum á viku, með skólanum, en svo eru líka æfingar sem ekki eru á ísnum; styrktaræfingar. Ég fer stundum tvisvar á dag og er þá til skiptis á ísnum og af honum. Ég er líka að þjálfa og er einn af sex menntuðum þjálfurum.“ Nánar er rætt við Marinó í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki bara glimmer og kjólar Tók 25 milljónir út í leyfisleysi Neymar í átökum við 18 ára táningsstrák Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spáð í spilin fyrir tímamótafund Prammi á stærð við handboltavöll Grín, hótanir og kærur Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Nýjast á mbl.is » Ekki bara glimmer og kjólar Tók 25 milljónir út í leyfisleysi Neymar í átökum við 18 ára táningsstrák Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Hvað er hantaveira? Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin