Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gríðarlega óvænt úrslit: „Maður er eiginlega hálforðlaus“

Read Full Article →

Mikil eftirvænting var eftir æfingum bandaríska listkautakappans Ilia Malinin í frjálsum æfingu karla. Malinin datt hinsvegar í tvígang og féll niður í áttunda sæti. Flestir höfðu spáð honum gulli og þurfti hann einungis að klára sína æfingu með sóma í kvöld til að taka það. Mikhail Shaidorov frá Kasakstan varð Ólympíumeistari og þykir það nokkuð óvænt. Japanir tóku silfur og brons og voru það þeir Yuma Kagiyama og Shun Sato. „Maður er eiginlega hálforðlaus hérna. Við vissum að við myndum sjá eitthvað sögulegt en þetta er eitthvað sem við sáum ekki fyrir,“ sögðu Nadía Margrét Jamchi og Kristín Valdís Örnólfsdóttir sem lýstu keppninni. „Skautaheimurinn mun taka smá tíma að jafna sig á þessu öllu saman.“ Svo virðist sem að taugarnar hafi náð til Malinin í kvöld. Þær Nadía og Kristín veltu fyrir sér hvort að álagið á leikunum hafi sagt til sín. Þetta er í fjórða sinn sem Malinin keppir á svellinu á leikunum hingað til. Hann vann gullverðlaun á sínum fyrstu Ólympíuleikum í liðakeppni í upphafi leika. Shaidorov sýndi hins vegar flotta takta og er þetta fyrsta medalía Kasaka í listskautum karla. Hélt á mynd af dánum foreldrum sínum á úrslitastundu Bandaríkjamaðurinn Maxim Naumov átti tilfinningaþrungna stund þegar skor hans var tilkynnt. Foreldrar Naumov féllu báðir frá í flugslysi fyrir ári síðan í Bandaríkjunum. Naumov hefur haft þann sið að halda uppi mynd úr barnæsku sinni þegar dómarar tilkynna skor hans. Á myndinni sést hann ungur með foreldrum sínum. Vadim Naumov og Evgenia Shishkova voru bæði fyrrum heimsmeistarar í íþróttinni. 28 foreldrar, þjálfarar og íþróttamenn tengdir bandarískum listskautum fórust í vélinni. Naumov er sagður hafa tjáð foreldrum sínum að draumur hans væri að komast í bandaríska landsliðið áður en þau féllu frá. Naumov endaði að lokum í 20. sæti.

Share this article