Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjár­festa fyrir 286 milljarða í dönsku orku­fyrir­tæki

Read Full Article →

Bandaríski fjár­festingar­risinn Black­stone er að kaupa sig inn í danska orku­fyrir­tækið Eurowind Ener­gy og mun eignast tæp­lega fjórðungs­hlut í félaginu. Fjár­festingin nemur allt að tveimur milljörðum evra, jafn­virði um 286 milljarða króna. Sam­kvæmt um­fjöllun Børsen er bæði verið að fjár­festa í núverandi hlutum en félagið mun einnig gefa út nýtt hluta­fé. Eurowind Ener­gy þróar, byggir og rekur verk­efni á sviði endur­nýjan­legrar orku. Höfuðstöðvar félagsins eru í Hobro á Jót­landi og nær starf­semin til 16 landa. Nor­lys, danska orkufélagið sem á um helming í Eurowind, verður áfram meiri­hluta­eig­andi ásamt stofn­endum félagsins. Stofn­endurnir eru Jakob Kort­bæk og bræðurnir Søren og Jens Rasmus­sen, en þeir stofnuðu félagið árið 2006. Jens Rasmus­sen verður áfram for­stjóri Eurowind eftir að við­skiptin ganga í gegn. „Með Black­stone sem langtíma­fjár­festi fær Eurowind fjár­hags­legt bol­magn til að taka næsta skref í þróun félagsins,“ segir Gert Vint­her Jørgen­sen, for­stjóri Nor­lys, í sam­tali við Børsen. Hann segir félagið komið á þann stað að áfram­haldandi upp­bygging kalli á fjár­festi með dýpri vasa en núverandi eig­endur hafi. Nýtt hluta­fé inn í félagið Ekki hefur verið upp­lýst um verðmat Eurowind í við­skiptunum. Fjár­festing Black­stone nær bæði til kaupa á núverandi hlutum og kaupa á nýjum hlutum, sem þýðir að hluti fjárins rennur beint inn í félagið. Jørgen­sen segir megin­mark­miðið vera að koma nýju fjár­magni inn í Eurowind svo hægt verði að halda áfram upp­byggingu. Nor­lys selji þó einnig minni hluta af eigin bréfum og muni nýta and­virðið til fjár­festinga í eigin rekstri. Nor­lys birti ný­lega árs­reikning sinn fyrir árið 2025. Þar kom fram að félagið var rekið með 1,1 milljarðs danskra króna tapi fyrir skatta, þrátt fyrir met­tekjur. Tapið skýrist meðal annars af miklum fjár­festingum. Með 55 gíga­vatta verk­efni Eurowind er einn stærsti þróunar­aðili endur­nýjan­legrar orku í Evrópu. Félagið starfar þvert á virðiskeðjuna, frá þróun verk­efna og leyfis­ferlum til rekstrar og sölu á orku. Í dag er félagið með verk­efni sem nema um 1,6 gíga­vöttum í rekstri eða upp­byggingu, en verk­efna­lína félagsins nemur um 55 gíga­vöttum. Það sýnir mikinn vaxtar­vilja og gerir fjár­mögnun að lykil­at­riði í næsta áfanga félagsins. Með Black­stone fær Eurowind að­gang að einum stærsta inn­viða­fjár­festi heims. Black­stone hefur meðal annars fjár­fest í bandaríska orku­fyrir­tækinu Invener­gy og átt í sam­starfi við NextEra Ener­gy um vindorku, sólar­orku og raf­hlöðu­verk­efni. Fer gegn straumnum á erfiðum markaði Inn­koma Black­stone kemur á tíma þegar hluti markaðarins fyrir endur­nýjan­lega orku er undir þrýstingi. Hærri vextir hafa gert orku­fram­kvæmdir dýrari í fjár­mögnun, kostnaður hefur hækkað og pólitísk óvissa hefur orðið til þess að nokkrir stórir aðilar hafa dregið úr áformum sínum. Danska orkufélagið Ørsted hefur til að mynda þurft að færa niður milljarða vegna haf­vind­verk­efna í Bandaríkjunum. Þá hafa stór olíu- og orku­fyrir­tæki á borð við BP, Shell og Equ­in­or endur­skoðað græn mark­mið sín og franska félagið Tota­lEnergies hefur fært hluta fjár­festinga frá vindorku yfir í gas í Bandaríkjunum. Fjár­festing Black­stone í Eurowind gengur því að nokkru leyti gegn straumnum á orku­markaði. Black­stone telur hins vegar að aukin raf­orku­notkun í Evrópu og þörf fyrir aukið orkuöryggi muni gera stór verk­efnasöfn í vindorku, sólar­orku og raf­hlöðum verðmætari á næstu árum. „Um­tals­vert fjár­magn þarf til að mæta orkuþörf Evrópu,“ segir Adam Kuhnl­ey, fjár­festinga­stjóri hjá Black­stone Infra­structure. Fjár­inn­spýtingin á að gera Eurowind kleift að hraða upp­byggingu sinni veru­lega. Félagið stefnir að því að byggja upp 1,5 gíga­vött af nýrri af­kasta­getu ár­lega fram til ársins 2030 og auka hraða upp­byggingar vind-, sólar- og raf­hlöðu­verk­efna allt að fjór­falt. Gert er ráð fyrir að við­skiptunum ljúki fyrir árs­lok, að því gefnu að þau fái samþykki yfir­valda.

Share this article