Sir Jim Ratcliffe, stofnandi og eigandi Ineos, hefur lagt undir stórt veðmál á evrópskan iðnað á sama tíma og eigin samstæða hefur verið undir þrýstingi á skuldabréfamarkaði. Ineos hefur fjárfest um 200 milljónir evra, jafnvirði tæplega 28,7 milljarða króna, í körfu hlutabréfa í skráðum félögum sem starfa í efnaiðnaði, samkvæmt skjölum sem Financial Times hefur undir höndum. Þessi fyrirtæki framleiða meðal annars hráefni, plastefni og íhluti sem eru notuð í stórum hluta nútímaiðnaðar, til dæmis í bílaframleiðslu, byggingariðnaði, lyfjaframleiðslu, matvælaumbúðum, orkuiðnaði og neytendavörum. Ineos segir í gögnum til skuldabréfafjárfesta að eigendur félagsins telji geirann vanmetinn á markaði. Óvenjulegt veðmál Fjárfestingin er óvenjuleg. Ineos er sjálft eitt stærsta félag Evrópu á þessu sviði og hefur undanfarin ár glímt við sama mótvind og keppinautarnir: ódýran innflutning frá Kína, hátt orkuverð, auknar umhverfiskröfur, offramboð og veika eftirspurn. Félagið hefur ekki upplýst hvaða bréf það hefur keypt. Í gögnum til fjárfesta kemur þó fram að um sé að ræða fjárfestingu í seljanlegum hlutabréfum skráðra félaga í geiranum. Þar kemur einnig fram að Ineos kunni að auka slíka áhættu eða kaupa bréf í fleiri félögum sem tengjast starfseminni. Financial Times segir gögnin benda til þess að um sé að ræða fjárhagslega fjárfestingu fremur en tilraun til að ná yfirráðum í öðrum félögum. Ineos segir fjárfestinguna líklega verða losaða á árinu 2026, en tekur fram að engin trygging sé fyrir tímasetningu sölu eða því að virði hennar lækki ekki. Skuldabréfin undir þrýstingi Ratcliffe byggði Ineos upp með skuldsettum kaupum á iðnaðareignum sem margir aðrir höfðu litla trú á. Félagið var stofnað árið 1998 og hefur síðan orðið eitt stærsta einkarekna iðnfyrirtæki heims. Samstæðan hefur lengi verið stór notandi evrópska hávaxtaskuldabréfamarkaðarins. Skuldabréf Ineos lækkuðu mikið síðustu tólf mánuði þegar fjárfestar fóru að hafa áhyggjur af skuldsetningu félagsins og horfum í greininni. Stórir vogunarsjóðir hafa jafnframt veðjað gegn fyrirtækjum í geiranum. Áhyggjurnar snúast meðal annars um að kínverskir framleiðendur hafi aukið framleiðslugetu sína verulega og þrýst þannig á verð og framlegð í Evrópu. Í bréfi til fjárfesta í janúar sagði bandaríski vogunarsjóðurinn Diameter að vandinn í greininni snerist ekki fyrst og fremst um skyndilega eftirspurnarlækkun heldur breytingar á framboði. „Vandinn er Kína,“ sagði sjóðurinn, samkvæmt FT. Stríðið í Íran breytti stöðunni tímabundið Nýleg átök í Íran hafa hins vegar létt undir með Ineos og nokkrum keppinautum þess. Nær lokun Hormússunds hefur dregið úr framboði frá Asíu og Mið-Austurlöndum. Það hefur hækkað verð á ýmsum iðnaðarhráefnum og bætt framlegð framleiðenda í Evrópu. Sama þróun hefur einnig hjálpað skuldabréfum Ineos. Samkvæmt FT höfðu sum skuldabréf félagsins fallið niður í um 80 sent á evru áður en stríðið hófst, en hafa síðan nálgast nafnverð á ný. Hlutabréf margra félaga í geiranum hafa einnig tekið við sér. BASF hefur hækkað um fimmtung frá áramótum, Evonik um nær þriðjung og Stoxx Europe 600 Chemicals-vísitalan um 8%. Íslandsvinur og eigandi í Manchester United Ratcliffe er vel þekktur hér á landi. Hann hefur um árabil sótt hingað til lands til veiða og hefur keypt jarðir og tengst laxveiðiréttindum á Norðausturlandi, meðal annars í Vopnafirði. Hann hefur því gjarnan verið nefndur Íslandsvinur. Hann er einnig orðinn áberandi í knattspyrnuheiminum. Ratcliffe og Ineos eiga stóran minnihluta í Manchester United og fara með veruleg áhrif á rekstur félagsins. Sjá einnig Íslandsvinur vill afnema kolefnisgjöld Veðmál gegn svartsýninni Fjárfestingu Ineos í skráðum félögum í sama geira má lesa sem skýra yfirlýsingu frá Ratcliffe og stjórnendum hans. Markaðurinn hefur um langt skeið verið svartsýnn á evrópskan efnaiðnað. Ratcliffe virðist hins vegar telja að sú svartsýni hafi gengið of langt og að verð á félögum í greininni endurspegli ekki langtímaverðmæti þeirra. Það er áhættusamt veðmál. Evrópskur iðnaður stendur enn frammi fyrir háum orkukostnaði, harðri samkeppni frá Kína, þrýstingi frá regluverki og óvissu um eftirspurn. En veðmálið passar vel við sögu Ratcliffe. Hann hefur áður byggt upp stórt veldi með því að kaupa eignir þegar fáir aðrir höfðu trú á þeim. Nú virðist hann telja að sama tækifæri sé að myndast á ný í þeim iðnaði sem gerði hann að einum ríkasta manni Bretlands. Sjá einnig Ineos í erfiðri stöðu og skoðar eignasölu