Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sæstrengir Farice aldrei slitnað

Read Full Article →

„Ég er mjög stoltur að segja frá því að okkar sæstrengir hafa aldrei slitnað,“ segir Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice. Það er merkilegt í ljósi þess að slit á sæstrengjum eru ekki óalgeng. „Það eru um sex hundruð sæstrengir í sjónum um allan heim í dag og á ári hverju slitna að meðaltali um tvö hundruð sæstrengir. Með ákveðinni einföldun má því segja að hver strengur ætti að slitna á um þriggja ára fresti en aftur á móti er dreifingin á slitunum alls ekki jöfn. Á meðan sumir strengir slitna með mjög reglulegu bili – oft á tíðum vegna mistaka sem verða við fiskveiðar – eru aðrir sem hafa aldrei slitnað, eins og til dæmis okkar strengir sem hefur tekist að halda öruggum.“ Aðspurður segir Þorvarður að nokkrar ástæður séu fyrir því að tekist hefur að koma í veg fyrir að sæstrengir Farice slitni. „Í fyrsta lagi leggjum við mikið upp úr samtali við hagsmunaaðila á borð við sjómenn. Þar sem að óhöpp við veiðar er algengasta orsök slita á sæstrengjum er mikilvægt að eiga í góðu samtali við sjávarútveginn. Þannig má tryggja að leiðin sem sæstrengurinn liggur um sé vel valin og að forðast séu erfið svæði. Til að mynda höfum við leitast eftir að leggja okkar strengi á stöðum þar sem hægt er að plægja sæstrenginn um það bil einn og hálfan metra ofan í sjávarbotninn niður að 1500 metra dýpri. Í þessu ferli er að sjálfsögðu best að leita til þeirra sem þekkja sjávarbotninn best: sjómanna.“ Að auki hafi sérstök löggjöf sem gildir hér á landi hjálpað til við að tryggja öryggi sæstrengjanna. „Lögin kveða á um að um leið og búið er að leggja streng í sjó myndast ákveðið helgunarsvæði þar sem bannað er að stunda veiðar með veiðafærum sem snerta hafsbotninn fjórðungssjómílu sitthvoru megin við strenginn.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article