Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr sæstrengur í bígerð

Read Full Article →

Farice, sem tengir Ísland við umheiminn með fjarskiptasæstrengjum, vinnur nú að undirbúningi við lagningu nýs sæstrengs sem mun leysa FARICE-1 sæstrenginn af hólmi. Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice, segir tvær meginástæður fyrir því að nauðsynlegt sé að leggja nýjan sæstreng. „FARICE-1 er elsti sæstrengurinn okkar og eins og með alla tækni þá hefur hún ákveðinn líftíma. Strengurinn er enn í fínu lagi og þjónar sínum tilgangi vel en þar sem bygging sæstrengs tekur nokkur ár þá viljum við fara strax af stað með verkefnið.“ Hann reiknar með að það muni taka um það bil fimm ár að byggja strenginn og önnur tvö til þrjú ár að færa umferð af FARICE-1 yfir á þann nýja. Seinni ástæðan fyrir byggingu nýs strengs er uppgangur gagnaveramarkaðsins. „Við þurfum að fá aukna rýmd í strengina til að geta gert gagnaversiðnaðinum kleift að halda áfram að vaxa. Til að halda sæstrengjunum hagkvæmum þurfum við að gæta þess að burðargeta þeirra aukist samhliða þörfum okkar viðskiptavina. Það eru rúmlega tveir áratugir síðan lokið var við lagningu FARICE-1 og því orðið tímabært að huga að arftaka hans.“ Af hagkvæmnisástæðum verður nýi sæstrengurinn lagður til Bretlandseyja og með tengingar þaðan til Skandinavíu og Evrópu enda er mesta eftirspurnin eftir umferð þar í gegn. „Þörf markaðarins liggur fyrst og fremst til Evrópu. Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að nettengingar héðan nái inn á stærstu gagnaversmarkaðina í Evrópu, oft kallaðir FLAP-D, sem stendur fyrir Frankfurt, London, Amsterdam, París og Dublin. Þetta eru netmiðjur álfunnar og því mikilvægt að vera með tengingar þangað. Þá eru Norðurlöndin sem gagnaverssvæði að stækka verulega og því mikilvægt að geta tengt gagnaverin á Íslandi þangað.“ Að sögn Þorvarðar horfir Farice til að lendingarstaður nýja sæstrengsins verði í nærri Glasgow, stærstu borg Skotlands. „Strengurinn mun ná frá suður hluta Íslands yfir til Glasgow. Það eru helst hagkvæmnissjónarmið sem liggja þar að baki, bæði hvað varðar leiðina í sjó sem og landtengingar niður til London, yfir Írlandshafið til Dublin og yfir Norðursjó til Norðurlandanna og til Amsterdam. Það liggur því beinast við lendingarsvæðið sé í Glasgow.“ 10 milljarða fjárfesting Aðspurður segir Þorvarður að áætlanir geri ráð fyrir að verkefnið feli alls í sér um 10 milljarða króna fjárfestingu. Hann leggur þó áherslu á að þar sem verkefnið sé enn á frumstigum sé kostnaðaráætlunin það sömuleiðis. „Við förum aldrei af stað með verkefni fyrr en okkur þykir við vera komin með verkefni í hendurnar sem er ekki bara tæknilega fýsilegt heldur einnig hagkvæmt. Nýi strengurinn uppfyllir þessa kröfu. Hann er hagkvæmur, tæknilega fýsilegur og mun styrkja netið fyrir viðskiptavini okkar um leið og hann eykur öryggi Íslands.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article