Viðskipti | mbl | 23.4.2026 | 9:52 Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Fyrirtækið Farice, sem á og rekur sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS, hefur hafið undirbúning að nýjum sæstreng sem mun liggja milli suðurhluta Íslands og Skotlands. Verkefnið er liður í áframhaldandi uppbyggingu fjarskiptainnviða félagsins og mun styrkja alþjóðlegar tengingar Íslands til muna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Nýr sæstrengur mun hljóta nafnið AUÐUR og er þar vísað til landnámskonunnar Auðar djúpúðgu Ketilsdóttur sem sigldi frá Skotlandi eins og fjallað er um í Laxdæla sögu. Hér má sjá strengi Farice. Ljósmynd/Aðsend Stefna að uppbyggingu án aðkomu ríkissjóðs Gert er ráð fyrir að nýr afhendingarstaður verði þróaður í Glasgow eða Edinborg. „Þaðan liggja öflugar tengingar til helstu fjarskiptamiðstöðva Evrópu, þar á meðal London, Dublin, Amsterdam og Norðurlanda. Með þessu stækkar net Farice verulega og eykur bæði sveigjanleika og afhendingaröryggi auk þess að stytta umferðartíma milli Íslands og helstu fjarskiptamiðstöðva í Evrópu,“ segir í tilkynningunni. Sjávarbotnskönnun vegna lagningar strengsins er fyrirhuguð sumarið 2027. Ef áætlanir ganga eftir verður strengurinn tekinn í notkun árið 2030. Nýi strengurinn mun taka við mikilvægu hlutverki í ljósi þess að FARICE-1, elsti strengur félagsins, verður 30 ára árið 2033. „Með nýjum streng er tryggt að endurnýjun innviða fari fram með góðum fyrirvara. Gert er ráð fyrir að strengurinn verði búinn mjög mikilli flutningsgetu til að mæta ört vaxandi þörfum, meðal annars vegna uppbyggingar gagnavera. Áætlað er að hann verði með 16–24 ljósleiðarapör,“ segir í tilkynningunni. Farice stefnir að því að fjármagna verkefnið án aðkomu ríkissjóðs. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvenær varð Ríkisútvarpið miðja íslenskrar fjölmiðlunar? Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Fleira áhugavert Illa gengur að mynda stjórn í Danmörku Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Fjármögnun fyrsta fasa lokið hjá First Water Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Birta Karen til Viðskiptaráðs Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Áhættan vanmetin við framkvæmdir Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Skólahreysti og Krónan í samstarf Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Birta Karen til Viðskiptaráðs Fjármögnun fyrsta fasa lokið hjá First Water Skólahreysti og Krónan í samstarf Áhættan vanmetin við framkvæmdir Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Lækka verð á hundruðum vara Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Þrír nýir eigendur að LEX 4,6 milljarða samningur Tekjur Dranga 40 milljarðar Húðvörur velta milljörðum Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvenær varð Ríkisútvarpið miðja íslenskrar fjölmiðlunar? Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Fleira áhugavert Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Fjármögnun fyrsta fasa lokið hjá First Water Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Birta Karen til Viðskiptaráðs Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Áhættan vanmetin við framkvæmdir Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Skólahreysti og Krónan í samstarf Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Carlsberg tryggir sér samning við Pepsi Birta Karen til Viðskiptaráðs Fjármögnun fyrsta fasa lokið hjá First Water Skólahreysti og Krónan í samstarf Áhættan vanmetin við framkvæmdir Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Lækka verð á hundruðum vara Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Þrír nýir eigendur að LEX 4,6 milljarða samningur Tekjur Dranga 40 milljarðar Húðvörur velta milljörðum