Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi

Read Full Article →

Hampiðjan hefur ráðist í uppbyggingu tveggja 28 þúsund fermetra verksmiðjuhúsa í Auric við Aurangabad á Indlandi. Netaverkstæði fyrir fiskeldisnet og veiðarfæri verður í öðru húsinu en verksmiðja fyrir net í hinu. Samhliða verður reist 2.000 fermetra skrifstofuhúsnæði og 1.200 fermetra þjónustu- og mötuneytisaðstaða fyrir starfsfólk sem verður um 750 þegar starfsemin verður komin í fullan gang. Uppbyggingin tengist kaupum Hampiðjunnar á indverska fyrirtækinu Kohinoor. Heildarbyggingarmagn í þessum áfanga nemur rúmlega 59 þúsund fermetrum. Síðastliðið haust gekk félagið frá kaupum á 120 þúsund fermetra lóð á iðnaðarsvæðinu í Auruc, með heimild til að byggja allt að 76 þúsund fermetra. Afar hagstæður launakostnaður í Indlandi Í tilkynningu félagsins er haft eftir Hirti Erlendssyni forstjóra að uppbyggingin styrki framleiðslugetu fyrirtækisins og auki hagkvæmni og sveigjanleika í rekstri. „Framleiðslu- og launakostnaður er afar hagstæður á Indlandi samanborið við Litháen þar sem við starfrækjum nú tvö stór netaverkstæði og tæknilega fullkomna kaðlaverksmiðju sem framleiðir hátæknitóg og lyftistroffur úr ofurefnum. Þetta ár fer að mestu í uppbygginguna og að koma framleiðslunni af stað og við munum því byrja að njóta meiri hagkvæmi næsta vetur og í enn meira mæli næsta ár.“ Gert er ráð fyrir að fyrra verksmiðjuhúsið verði tilbúið í lok júlí og það seinna mánuði síðar, að því er segir í tilkynningunni. Heildarkostnaður við lóðina og byggingarframkvæmdir er talinn munu nema 18,6 milljónum evra, eða sem nemur 2,7 milljörðum króna. Byggingarkostnaður á fermetra nemur um 34 þúsund krónum.

Share this article