- What: New maintenance solution launched
- Impact: Improved industrial maintenance processes
Véltæknifyrirtækið Héðinn hefur stofnað nýtt dótturfélag, Magni Solutions ehf. Dótturfélagið heldur utan um tæknilausn sem gjörbreytir viðhaldi vélbúnaðar og tækja í skipum, verksmiðjum, vatnsaflsvirkjunum, olíuborpöllum og annars staðar þar sem þarf að sinna reglulega viðhaldi flókins búnaðar. Þessi nýja lausn Magna byggir á nýjum hugbúnaði sem styðst við gervigreind. „Héðinn hefur í yfir 100 ár þjónustað skip og vélar af ýmsum toga. Á þeim tíma hafa þjónustumenn fyrirtækisins séð sama vandann ítrekað: þegar kemur að viðhaldsvinnu þarf fyrst að byrja að grafa upp handbækur, minnisblöð, hringja fjölmörg símtöl og senda tölvupósta fram og til baka. Þetta eru samskipti milli þeirra þriggja hópa sem koma að búnaðinum: eigendanna, vélstjóranna sem reka búnaðinn og svo þeirra sem þjónusta hann. Magni byltir þessu umhverfi og einfaldar það til muna,“ segir Daníel Freyr Hjartarson, sem var yfirmaður nýsköpunar og þróunar hjá Héðni en hefur nú fært sig um set og stýrir nýja félaginu. Nýtist notendum strax „Lausn Magna er í raun alger bylting á þessu umhverfi, segir Daníel. „Þar fá þessir þrír hópar sem koma að búnaði – eigendur, vélstjórar og þjónustuaðilar – miðlægt yfirlit yfir tækjabúnaðinn og geta með margfalt einfaldari hætti skipulagt viðhald og viðgerðir. „Þetta er hugbúnaðarlausn sem safnar saman öllum upplýsingum um skip eða verksmiðju á einn aðgengilegan stað: handbækur, teikningar, viðhaldsáætlanir, verkskýrslur og margt fleira, þar sem hægt er að leita í öllum þessum gögnum samtímis með aðstoð gervigreindar.“ Dæmi um sýndarveruleika sem er í boði í lausn Magna. Daníel segir að algengasti vandinn sem starfsmenn Héðins hafi tekið tekið eftir í eldri viðhaldsskipulagstólum sé vinnan og tíminn sem það taki að koma inn gögnum. „Það er verið að kaupa ægilega fín og flott forrit en eftir að búið er að setja þau upp blasir við hvítur, tómur skjár og þá þarf að fara í margra mánaða vinnu við að mata inn upplýsingar um tæki og viðhaldsáætlanir. Í Magna höfum við tól til þess að lesa inn allar upplýsingar um öll tæki sem er að finna í togara á nokkrum mínútum. Tólið nýtist notendum strax. Þetta lágmarkar þann tíma sem skip þurfa að vera í höfn eða stöðva þarf verksmiðjur,“ segir Daníel. Fjaraðstoð í rauntíma Magni gerir þjónustuaðilum kleift að aðstoða um borð í skipum í rauntíma í gegnum þjónustugleraugu, án þess að þurfa að koma á staðinn. Með þrívíddarskönnun á skipum og verksmiðjum er hægt að hanna og undirbúa stærri viðhaldsverkefni meðan skipið er enn á veiðum. Þegar vélstjórar eru tengdir Magna geta þeir sett upp þjónustugleraugu og skoðað þrívíddarteikningar af vélbúnaði um leið og þeir eru tengdir þjónustuveri í rauntíma, sem hjálpar þeim við að greina mögulega bilun með hraðari og aðgengilegri hætti en áður. Í Magna er allt á einum stað: notkunarleiðbeiningar, tækniteikningar og viðhaldsáætlanir frá framleiðendum búnaðar. Ein útgáfa af skjáyfirlit yfir vélbúnað í lausn Magna. Í tilkynningu segir að Magni spretti upp úr skipaþjónustudeild Héðins sem hafi í meira en sjö áratugi verið umboðsaðili Rolls-Royce Marine skipavéla og Kongsberg Maritime, en þessir alþjóðlegu iðnrisar runnu saman undir nafni síðarnefnda félagsins árið 2019. Með stofnun Magna Solutions er verið að útvíkka þjónustulausn, sem var fyrst aðeins í boði fyrir útgerðarfélög en eigendur annars flókins vélbúnaðar geta nú nýtt sér.