Peter Magyar, leiðtogi Tisza-flokksins sem vann stórsigur í þingkosningunum í Ungverjalandi um helgina, hefur fengið skriflegt umboð frá forseta landsins, Tamás Sulyok, til að reyna að mynda nýja ríkisstjórn. Magyar birti bréfið á X í gærkvöld. Í færslunni segir Magyar að þeir hittist formlega vegna umboðsins á morgun. Hagsmunir Ungverjalands séu að valdaskipti fari fram eins fljótt og hægt er. Á blaðamannafundi í gærkvöld sagði hann að niðurstöður kosninganna ættu að vera að fullu staðfestar 4. maí og hann vonaðist til að ríkisstjórn hans gæti tekið við völdum strax næsta dag. Magyar hefur verið mjög gagnrýninn á Sulyok og ítrekað krafist þess að hann segði af sér. Olyok er hliðhollur Viktor Orbán fráfarandi forsætisráðherra. Í annarri færslu sagði Magyar jafnframt að kosningadagurinn hafa marka endalok tveggja áratuga martraðar. Hann hefur boðað að gripið yrði til aðgerða fljótt gegn spillingu, endurvekja sjálfstæði dómstóla og tryggja fjölmiðlafrelsi, í þeirri von að endurheimta fjármagn frá Evrópusambandinu sem hefur verið fryst.