Péter Magyar, sem vann stórsigur í þingkosningum í Ungverjalandi um helgina, fór í morgun í fyrstu viðtöl sín í ríkisfjölmiðlum landsins í átján mánuði. Hann sakar fjölmiðlana um að vera áróðurstæki stjórnar Orbans en nú verði breyting á. Endurskoðar reglur um starfsemi ríkisfjölmiðla Hert var að fjölmiðlum í Ungverjalandi í sextán ára valdatíð Viktors Orbans sem senn er á enda. Péter Magyar sagðist í viðtölum á ríkisfjölmiðlunum í morgun ætla að láta gera tímabundið hlé á fréttaflutningi þar. Endurskoða þurfi allt því stöðvarnar hafi verið orðnar áróðursstöðvar Orbans. Hann sagði Ungverja eiga skilið ríkisfjölmiðla sem leita sannleikans. Magyar fór í útvarps- og sjónvarpsviðtal hjá ríkisfjölmiðlunum í morgun og voru það fyrstu viðtöl þeirra við hann í eitt og hálft ár. Þar fagnaði hann góðu gengi í þingkosningunum á sunnudag og lofaði ýmsum breytingum, svo sem auknum styrkjum til fjölskyldna. Eins ætlar hann að bæta samskiptin við Evrópusambandið. Ungverjaland hefur orðið af styrkjum fyrir að fara gegn ýmsum reglum þess. Krefst afsagnar forsetans Magyar hefur krafist þess að Tamas Sulyok, forseti Ungverjalands, víki úr embætti. Forsetinn, sem hefur verið stuðningsmaður Orbans, ætlar ekki að verða við þeirri kröfu. Magyar kveðst hafa tjáð forsetanum að hann gæti hvorki verið sameiningartákn ungversku þjóðarinnar né tryggt að virðing sé borin fyrir lögum landsins. Forsetinn boðaði leiðtoga flokkanna á sinn fund í morgun, þeirra á meðal Magyar og Orban.