- What: Peter Magyar, leader of the opposition Tisza party in Hungary, pledged to fight corruption and rebuild the economy at a rally in Budapest.
- Impact: Magyar accuses Viktor Orban and his allies of enriching themselves during their time in power.
Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Tisza á ungverska þinginu, hét því að gerjast gegn spillingu og endurreisaa hagkerfið á kosningafundi í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í gær. Hann hét því einnig að endurheimta frelsið sem hann segir Viktor Orban hafa skert í valdatíð sinni sem forsætisráðherra. Magyar er talin vera stærsta ógn og keppinautur Orbans og flokks hans Fidezs, frá því Orban var kosinn forsætisráðherra fyrir sextán árum. Tisza flokkurinn, hefur mælst með mun meira fylgi en flokkur Orbans í skoðanakönnunum undanfarna mánuði. Magyar sakar Orban og bandamenn hans um að hafa auðgast í valdatíð sinni. „Það er kominn tími til að kalla spillingu réttu nafni: þjófnað,“ sagði Magyar. Hann sakaði einnig Orban um að njósna um andstæðinga sína og lofaði að efla borgaraleg réttindi. Stjórnarandstæðingar og mannréttindahópar hafa reglulega ásakað Orban um að þagga niður í gagnrýnisröddum úr dómskerfinu, fræðasamfélaginu og fjölmiðlum, og að skerða réttindi minnihlutahópa. Orban kallaði eftir stuðningi kjósenda á laugardaginn og hét því að halda áfram aðgerðum gegn borgaralegum samtökum, blaðamönnum, dómurum og stjórnmálamönnum. Þeirri vinnu væri hvergi nærri lokið. Magyar skoraði á Orban að mæta honum í kappræðum fyrir kosningarnar sem fara fram 12. apríl.