Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ósigur Orbans er léttir í Brussel og annars staðar í Evrópu

Read Full Article →

Afgerandi sigur Tisza-flokksins og Peters Magyars í þingkosningunum í Ungverjalandi í gærkvöld, og aukinn meirihluti flokksins á þinginu í Búdapest, þýðir að flokkurinn hefur nú svigrúm og umboð til að afturkalla margar af þeim grundvallarbreytingum á stjórnskipulagi og stofnunum sem Fidez-flokkur Viktors Orban hefur gert undanfarin sextán ár. En sigurinn í gærkvöld þýðir ekki aðeins vatnaskil fyrir ungverska kjósendur, heldur einnig fyrir Evrópusambandið, þar sem Orban hefur í langan tíma nýtt sér veikleika stjórnkerfisins, spilað á neitunarvald einstakra ríkja, tekið mikilvæg mál í gíslingu og fengið tilslakanir í staðinn. Það var auðvitað ástæðan fyrir því að Ursula von der Leyen fagnaði sigri Magyars, aðeins nokkrum mínútum eftir að Orban hafði viðurkennt ósigur sinn og Fidez-flokksins. Þótt Peter Magyar sé hægri sinnaður stjórnmálaleiðtogi - fyrir ekkert svo löngu var hann innanbúðarmaður í Fidez-flokki Orbans - þá hefur hann nú þegar sent skilaboð um að Ungverjaland verði uppbyggilegur samstarfsaðili á vettvangi Evrópusambandsins. Magyar sagðist í gærkvöld ætla í sínar fyrstu opinberu heimsóknir til Varsjár, Vínar og Brussel, þar sem verkefni hans verður ekki síst að fullvissa leiðtoga og embættismenn Evrópusambandsins um að Tisza-flokkurinn geti, og ætli sér að gera þær breytingar á stjórnskipulagi og réttarfari í Ungverjalandi sem taldar eru nauðsynlegar til að aflétta hömlum á milljarða evra styrki sem Evrópusambandið hefur haldið aftur af í langan tíma. „Valdaklíkan er farin frá,“ sagði Magyar í sigurræðu sinni á bökkum Dónár í gær, og „Ungverjaland verður aftur sterkur bandamaður í Evrópusambandinu og NATO,“ bætti hann við, og sagði einnig að hann myndi ræða „það sem útaf stendur“ í samskiptum Ungverjalands við nágrannaríki. Þetta má skilja sem ákveðin skilaboð til Úkraínumanna um að Magyar sé tilbúinn að tala um risalán sem Evrópusambandið er með í pípunum fyrir stjórnvöld í Kyiv, en Viktor Orban hefur staðið í vegi fyrir að undanförnu. Hins vegar er ekkert endilega útlit fyrir að Magyar verði besti vinur ráðamanna í Úkraínu; hann hefur ítrekað lýst því yfir að Ungverjar vilji ekki senda vopn þangað og vill ekki samþykkja hraða inngöngu Úkraínu í Evrópusambandið. Áfall fyrir Trump og hreyfingar hægriflokka í Evrópu Á sama tíma og sigur Magyars hér í Ungverjalandi er léttir fyrir flestalla aðra leiðtoga Evrópusambandsríkjanna og framkvæmdastjórn ESB, þá er hann einnig áfall fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta og þá Repúblikana sem fylgja honum að málum vestanhafs. Sú hreyfing hefur litið til Viktors Orbans sem eins konar leiðarljóss í hugmyndafræði sem meðal annars gengur út á andstöðu við innflytjendendur, og íhaldsama þjóðernisstefnu, og ekki síður hvernig á að setja upp það sem stjórnmálafræðingar (og Orban sjálfur) hafa kallað „stjórnsamt lýðræði“ ( illiberal democracy ). Trump lýsti margoft yfir stuðningi við Orban í aðdraganda kosninganna og sendi tvo af sínum æðstu fulltrúum til Búdapest; Marco Rubio utanríkisráðherra kom hingað í febrúar, og JD Vance varaforseti var á kosningasamkomum Orbans í síðustu viku. Ósigur Orbans og Fidez-flokksins er einnig áfall fyrir evrópska leiðtoga á hægri kantinum; fólk á borð við Robert Fico, forsætisráðherra Slóvaíku, Andrei Babis, forsætisráðherra Tékklands og Giorgiu Meloni forsætisráðherra Ítalíu, sem öll lýstu yfir stuðningi við Orban fyrir kosningarnar. Niðurstaðan í gær mun einnig hafa áhrif á Evrópuþinginu, þar sem Orban hefur verið hugmyndafræðilegur leiðtogi flokkahópsins sem kallar sig Evrópskir föðurlandsvinir ( Patriots for Europe ).

Share this article