Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 23:32 Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður hefur gefið út sína fjórðu bók, Fólkið í vinnunni. mbl.is/Árni Sæberg Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Það er hægt að segja sögur af lífinu í landinu með ýmsu móti og þetta er ein leiðin, að gera það út frá sjónarhóli fólksins sem vinnur störfin. Mér þykir mjög vænt um að fólk var til í að segja sínar sögur,“ segir Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður. Sigurður Bogi sendi nýverið frá sér bókina Fólkið í vinnunni sem inniheldur 73 viðtöl við Íslendinga á 152 blaðsíðum. Í bókinni birtist góður þverskurður af þjóðinni og sögurnar eru bæði fjölbreyttar og skemmtilegar. Höfundurinn kveðst hafa byrjað að safna efni í bókina fyrir ári. „Hugsunin frá fyrstu stundu var að hafa þetta tiltölulega jafnt hlutfall karla og kvenna og að landið allt væri undir. Viðmælendur eru líka úr öllum áttum; smiður, kennari, ljósmóðir, læknir, lögfræðingur og alþingismaður svo dæmi séu tekin. Ég vildi að þarna sæist vel hversu marga þarf til að samfélagið virki. Sum viðtalanna hafa áður birst í Morgunblaðinu en ég lagaði þau til og uppfærði í samráði við viðmælendur. Fólkið tók vel í þetta og hafði gaman af því að segja frá sínu starfi.“ Fór víða um land í efnisleit Sigurður Bogi kveðst hafa spurt viðmælendur af hverju þeir hafi valið sér sinn starfsferil, hvaða hugsjónir þeir hafi og með hvaða hugarfari þeir mæti nýjum degi. „Í fyrsta kafla er þannig rætt við alþingismann þar sem leikreglur samfélagsins eru settar, í öðru er talað við bakara sem leggur okkur til hið daglega brauð, þá hótelstjóra sem segir að í morgunverðinum sé bráðnauðsynlegt að hafa gott kaffi. Svona rúllar þetta áfram í viðtölunum.“ Sigurður Bogi fór víða um landið og spjallaði við fólk og tók af því myndir. „Bókin er ekki bara um brauðstritið. Þarna er líka talað við kórstjóra því söngurinn gleður, formann í íþróttafélagi því það eru allir að sprikla og kennara af því að börnin fara í skóla.“ Þetta er fjórða bókin sem Sigurður Bogi sendir frá sér. Allar eru þær í svipuðum anda og afurð blaðamannastarfsins; fjallað er um fólk og fréttir, ýmsa sögulega atburði og hvernig frá þeim er sagt. Síðasta bók hans hét Alls konar fólk þar sem finna mátti stuttar mannlífsmyndir héðan og þaðan af landinu – sögur af alls konar fólki. „Það er allt í málinu“ Þar er Sigurður Bogi einmitt á heimavelli því fátt kveikir meira í honum en skemmtilegar sögur af fólki. Þegar mest liggur við og hann hefur landað góðu máli heyrist gjarnan kallað hátt yfir ritstjórn Morgunblaðsins: „Það er allt í málinu!“ „Já, ég hef óskaplega gaman af þessu. Þessi bók er svolítill endurómur af því sem ég starfa við alla daga og hefur orðið sérsvið mitt í blaðamennsku; að skrifa um fólk og lífið í landinu. Slíkar frásagnir hafa vægi fyrir þjóðfélagsumræðuna, hvað Jón og Gunna eru að gera, þegar argaþrasi hörðu málanna sleppir.“ Bókina er hægt að kaupa hjá höfundi sjálfum í gegnum Facebook og í gegnum netfangið [email protected] . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hermennirnir sem lifðu af: Eins og úr bíómynd Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Scheffler þremur á eftir McIlroy Björguðu yfir 250 hundum af einu heimili Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun „Það verður rautt ljós sílogandi“ Segir konungsfjölskylduna þurfa Íslendinginn sem ráðgjafa Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Hermennirnir sem lifðu af: Eins og úr bíómynd Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Scheffler þremur á eftir McIlroy Björguðu yfir 250 hundum af einu heimili Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin greiði einstaklingum á biðlista milljónir Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article