Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Silfurgengið: Vel heppnuð bók sem gæti kveikt ættfræðiáhuga

Read Full Article →

Sigríður, sem alltaf er kölluð Sirrýlei, fær silfurnælu frá ömmu sinni að gjöf á 15 ára afmælisdaginn. Hún virðist ekkert ógurlega ánægð með gjöfina í fyrstu, nælu frá því á 19. öld. Á endanum kviknar forvitni Sirrýleiar fyrir formæðrum sínum sem áttu næluna á undan henni. Sagan sem Brynhildur Þórarinsdóttir segir í þessari nýjustu bók sinni, sem nefnist Silfurgengið, teygir sig því frá ofanverðri 19. öld og til samtímans. „Hún lýsir lífshlaupi kvenna sem allar áttu erfiðari ævi en aðalpersónan sem lifir mjög góðu lífi sem nútímatáningur,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar um bókina. Höfundur notar ýmiss konar stílbrögð. Inn í beina frásögn fléttast dagbókarbrot, bréfasamskipti og smáskilaboð sem fara á milli nútímaunglinga á samfélagsmiðlum. „Þetta er gríðarlega fín unglingabók með dýpt og góðri persónusköpun og tengingu á milli kynslóða,“ segir Kolbrún. Ingibjörg Iða Auðunardóttir tekur undir þetta. Nær góðu uppbroti með notkun smáskilaboða „Fólk á öllum aldri gæti haft gaman af þessari sögu. Mér finnst fléttunin milli tímabila takast afar vel. Hún flæðir vel og það er góður taktur í sögunni. Mér finnst afar skemmtilegt þegar hún brýtur upp frásögnina með þessum smáskilaboðum,“ segir Ingibjörg. Tungutakið beri þess þó merki að bókin sé skrifuð af fullorðnum höfundi. Ingibjörg segir að hún myndi ekki endilega rétta hvaða unglingi sem er þessa bók. Að hennar mati henti bókin einkum táningum með áhuga á ættfræði og menningu. „Þarna er ég ósammála. Mér finnst hún einmitt vera fyrir alla og hún er til þess fallin að kveikja áhuga á ættfræði,“ svarar Kolbrún. Gagnrýnendur Kiljunnar voru sammála um að ný ungmennabók Sigríðar Þórarinsdóttur gæti náð vel til fólks á öllum aldri. Í bókinni fær unglingsstúlka áhuga á sögu formæðra sinna þegar hún fær gamla silfurnælu í afmælisgjöf frá ömmu sinni. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur í Kiljunni á RÚV. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article