Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enginn gerir mig reiðari

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 28.3.2026 | 12:50 Enginn gerir mig reiðari Hólmfríður og Vigdís Hafliðadætur eru að gera það gott í leiklistinni þessa dagana. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Systurnar hæfileikaríku, Vigdís og Hólmfríður Hafliðadætur, hittast sjaldan þennan veturinn, enda er Hólmfríður nú búsett á Akureyri þar sem hún er á fjölunum hjá Leikfélagi Akureyrar. Blaðamaður greip þó tækifærið á sunnudaginn var þegar fréttist að í nokkra tíma yrðu þær í sama landshluta og mætti í heimsókn á heimili Hólmfríðar vestur í bæ. Stutt var fyrir systur hennar að rölta yfir, enda býr Vigdís beint á móti og geta þær því nánast kallast á á milli blokka. Alla jafna, þegar Hólmfríður er í höfuðborginni, trítla þær systur mjög oft yfir hvor til annarrar. Vigdís er þekktari en systir hennar sem er fimm árum yngri og að stíga sín fyrstu spor sem útskrifuð leikkona, en margir þekkja Vigdísi úr ýmsum sjónvarpsþáttum, uppistandi og Kappsmáli. Nú í fyrsta sinn leika þær saman en þær leika systur í sjónvarps ­ seríunni Tuttugu og eitthvað sem landsmenn fá að sjá í apríl. Vorum aldrei í samkeppni Vigdís sá systur sína fyrst á sviði þegar Hólmfríður var níu ára í Söngvaseiði árið 2009 en hún hafði einnig sótt þar um hlutverk og ekki fengið. Vigdís fór í tívolí daginn sem Hólmfríður fæddist og var því með andlitsmálningu þegar hún hitti hana fyrst. „Ég komst í lokaúrtakið í Söngvaseið; það munaði litlu. Við vorum aldrei í samkeppni en maður getur samglaðst öðrum og verið leiður á sama tíma. Mamma var alveg miður sín en ég jafnaði mig fljótt enda hef ég áhuga á mjög mörgu,“ segir Vigdís. Vigdís reyndi við leiklistardeild LHÍ á sínum tíma og komst ekki inn og sneri sér þá að tónlist og heimspekinámi í Háskóla Íslands. Hún stofnaði síðan hljómsveitina Flott sem hefur gert það gott, fór í uppistand og ekki má gleyma handritaskrifum. Í hverju ertu þessa dagana? „Ég er í leiksýningunni Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu sem er grínleikrit sem ég skrifaði ásamt Arnóri Björnssyni og Óla Gunnari Gunnarssyni. Svo leik ég einnig í sjónvarpsþáttum sem ég er líka höfundur að, Tuttugu og eitthvað, sem koma á RÚV 17. apríl. Hólmfríður leikur líka í þeim þætti,“ segir Vigdís. „Já, ég leik systur Vigdísar, en ekki yngri systur heldur eldri! Vigdís leikur leiklistarnema,“ segir Hólmfríður. Vigdís grípur fram í: „Ég skrifaði ekki þennan kafla!“ Hólmfríður fær orðið: „Ég hafði einmitt grunsemdir þegar ég sá að Vigdís væri að leika leiklistarnema sem væri ansi sjálfhverfur í sinni list og hugsaði; er þetta þáttur um mig? En persónan sem Vigdís leikur, Diljá, er ekki mjög lík mér,“ segir Hólmfríður. Fólk spyr hvor sé eldri Þríeykið sem samdi Ekki hugmynd, Vigdís, Óli Gunnar og Arnór, eiga einnig heiðurinn af Tuttugu og eitthvað. Leikstjóri er Kristófer Dignus hjá Kontent. „Þetta eru grínþættir um þrjár manneskjur sem eru tuttugu og eitthvað sem eru að reyna að finna sig í upphafi fullorðinsára. Við fylgjum þremur karakterum sem tengjast ekki mikið,“ segir Vigdís. Eru sögurnar byggðar á þínu lífi? „Það eru kannski einhver sannleikskorn en þetta er grín og á að vera fyndið. Við ræddum alls konar hluti sem gerast á þessum tíma og hvað er fyndið í því; við ræddum ástina, sambönd við foreldra, nám, vinasambönd, tilvistarkreppu, og fundum grínpunktinn í þessum atriðum,“ segir hún. Systurnar leika systur í Tuttugu og eitthvað sem sýnt verður á Rúv þann 17. apríl. „Höfundarnir þrír leika öll og svo ræður hún mig, á viðkvæmum aldri, til að leika eldri systur sína! Þetta var erfitt og við þurftum að eiga samtal um þetta því nú er fólk farið að spyrja; hvor er eldri? Þetta er erfiður kafli í mínu lífi,“ segir Hólmfríður og Vigdís skellihlær. „Þetta sýnir bara hvað þú ert ofboðslega þroskuð og ég barnaleg,“ segir Vigdís. Við förum að slá botninn í viðtalið en blaðamaður spyr að lokum hvort þær séu góðar vinkonur, enda er greinilegt að milli þeirra ríkir mikill systrakærleikur. „Við erum mjög góðar vinkonur en það gerir mig enginn reiðari en hún,“ segir Hólmfríður og Vigdís botnar setninguna: „og enginn fer meira í taugarnar á mér en systir mín.“ „En það er ekki mjög oft lengur,“ segir Vigdís og brosir. Ítarlegt viðtal er við systurnar í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Enginn gerir mig reiðari Hættir störfum hjá KSÍ Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Difficult driving conditions after 4 PM Hætta hringsóli á bílastæðum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eru ennþá taplausir í Gettu betur Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Skurðirnir standa fyrir sínu Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Samgöngutruflanir eru líklegar Það er spurning hvar maður lendir Líkamsárás í verslunarmiðstöð Öryggisviðbúnaður aukinn á Höfðatorgi Eru ennþá taplausir í Gettu betur Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Nýjast á mbl.is » Enginn gerir mig reiðari Hættir störfum hjá KSÍ Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Difficult driving conditions after 4 PM Hætta hringsóli á bílastæðum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lúxussnekkjunni hleypt í land af öryggisástæðum Óánægja með bankaskatt Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Samgöngutruflanir eru líklegar Það er spurning hvar maður lendir Líkamsárás í verslunarmiðstöð Öryggisviðbúnaður aukinn á Höfðatorgi Eru ennþá taplausir í Gettu betur Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf

Share this article