Innlent | mbl | 13.3.2026 | 14:48 Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Tíu líkmenn báru kistuna síðasta spölinn út úr kirkjunni, vinir og samstarfsmenn Davíðs. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Blíðskaparveður var þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Fjölmenni var við útför Davíðs, en meðal viðstaddra voru núverandi og fyrrverandi ráðamenn landsins, forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ýmsir embættismenn og sendiherrar erlendra ríkja, ásamt fjölskyldu og vinum. Séra Geir Waage jarðsöng Davíð, en hann er tengdafaðir Þorsteins, sonar hans. Komst hann við þegar hann fór yfir æviágrip Davíðs í minningarorðum og rifjaði upp góðvild hans og gamansemi. Minntist Geir þess að Davíð hefði verið gamansamur maður sem þótti lífið skemmtilegt. Honum hafi yfirleitt tekist að breyta þungu andrúmslofti með einni setningu eða lítilli gamansögu. Hann hafi verið hafsjór skemmtisagna sem margar voru byggðar á samtölum hans við fólk. Hann hafi verið nærgætinn, elskulegur og raungóður, en umfram allt skemmtilegur. Þá rifjaði Geir upp hve mikill dýravinur Davíð var. Hann hafi hugsað vel um kettina í hverfinu og jafnframt fuglana. Félagar í Sambandi ungra Sjálfstæðismanna (SUS) stóðu heiðursvörð. mbl.isI/Karítas Kristinn Sigmundsson söng einsöng við útförina, en organisti var Tómas Guðni Eggertsson og Sigurgeir Agnarsson lék á selló. Þá söng Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar. Lögreglumenn báru kistu Davíðs út kirkjuganginn á meðan undir hljómaði lagið Ísland er land þitt. Í anddyrinu tóku við tíu líkmenn, vinir Davíðs og samstarfsmenn, sem báru kistuna síðasta spölinn frá kirkjunni að líkbílnum. Það voru þeir Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eldjárn rithöfundur, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, Eiríkur Jónsson læknir, Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, athafnamaður og stjórnarmaður í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Frétt af mbl.is Davíð Oddsson jarðsunginn Lögreglumenn báru kistu Davíðs út kirkjuganginn. mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vaka kynnir framboðslista sína Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Englendingarnir þreyttir á Elíasi Flags flown at half-mast abroad SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varðskipin verði oftar við gæslustörf Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Davíð Oddsson jarðsunginn Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Dæmdur í átta ára fangelsi Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Vaka kynnir framboðslista sína Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Englendingarnir þreyttir á Elíasi Flags flown at half-mast abroad SKE fagnar því að ráðuneytið bregðist loks við Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Quang Le fær ekki að opna bankareikning Yfir eitt þúsund árásir á dag Bandarískur hershöfðingi stjórnar rannsókninni Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Dæmdur í átta ára fangelsi Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu