Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Enginn kaupir standard skó í skóbúð

Read Full Article →

Er þá sveiflan mæld og fleira þess háttar með hjálp nýjustu tækni í golfhermi. Eins og gengur. „Hjá kylfingum er aukin vitund um að gott sé að fara í mælingu. Fólk er mismunandi og þar af leiðandi þurfa margir að láta sérsmíða kylfurnar fyrir sig,“ segir Birgir og spurður um hvers vegna kylfingar ættu að fara í mælingu svarar hann því skemmtilega. „Af því að það er ekki búið að klóna okkur. Við erum öll mismunandi. Þegar ég rölti út á æfingasvæði þá sé ég að engin engar tvær sveifla sveiflur eru alveg eins og enginn engir tveir hreyfir hreyfa sig eins. Þar af leiðandi eiga golfkylfurnar ekki að vera eins fyrir alla.“ Einhverjir kunna að sjá fyrir sér að mælingar séu bara fyrir þá sem hafa mikið vald á íþróttinni og séu farnir að spá í smáatriði í golfsveiflunni. Kylfingar sem eru að keppast við að leika hringinn á 72 höggum en ekki 73. Birgir segir það ekki síður gott fyrir nýliða en þá sem eru lengra komnir að fara í mælingu. „Því lélegri sem þú ert eru meiri líkur á því að kylfan geti hjálpað þér. Ef besti golfari á Íslandi kemur til mín gæti ég nánast látið hann eða hana hafa hvaða kylfu sem er og viðkomandi myndi finna einhverja leið til að slá boltann með ágætum árangri. Ég segi byrjendum gjarnan að kaupa kylfur sem passa fyrir þá. Ef fólk er að prófa, og veit ekki hvort það mun fá mikinn áhuga, er ágætt að kaupa fáar kylfur til að byrja með. Kannski bara eina, tvær eða þrjár. Tveggja metra hár maður getur ekki beitt sér með kylfum sem eru markaðssettar sem byrjendasett þegar þær taka ekkert mið af því hversu hávaxinn hann er,“ segir Birgir og bætir því við að þegar fólk fái golfbakteríuna, og stundi íþróttina mikið sé mikilvægt að grunnurinn sé góður. „Ef nýliði kaupir byrjendasett án þess að fara í mælingu þarf hann kannski að byrja upp á nýtt eftir þrjú ár. Þá á ég við að viðkomandi er kominn á fullt og fer þá í mælingu. Þá þarf hann að venja sig á að nota kylfur sem eru kannski töluvert frábrugðnari þeim sem hann hefur notað. Grunnmæling er því mjög góð fyrir byrjendur. Þá er ég að tala um hversu hár kylfingurinn er, er hann með langa handleggi, stóra putta og þess háttar. Það er fín byrjun. Við getum líkt þessu við að kaupa skó. Það fer enginn í skóbúð og segist bara vilja kaupa standard skó. Líkurnar á því að þeir skór henti vel eru litlar.“ Sjá einnig Árshátíð kylfinga á Íslandi Lítið fer fyrir sumarfríi Miðað við reynslu Birgis í starfi kemur alloft fyrir að kylfingar telji sig þurfa að fjárfesta í nýjum kylfum þegar lausnin á vandamálinu á golfvellinum gæti verið önnur. „Þetta er algengur misskilningur. Fólk sem kemur í mælingu telur stundum að það þurfi að fara í mikil kaup og fá sér nýjar kylfur. Stundum mæli ég ekki með að fólk breyti neinu því það sé bara vel sett. Í einhverjum tilfellum þarf að breyta kylfum örlítið eða það gæti veriðnóg að skipta um grip. En ef það kemur einhver til mín með antík kylfur sem henta viðkomandi engan veginn legg ég auðvitað til að fá sér nýjar kylfur. En það er alls ekkiþannig í öllum tilfellum.“ Þegar kylfingar reyna að njóta útivistar á sumrin á golfvöllum landsins er háannatími hjá Birgi og kollegum hans. Þá er hann alla daga innandyra í gluggalausu rými að sinna viðskiptavinum. En hvernig er hefðbundinn vinnudagur í þessu fremur óvenjulega starfi? „Mælingar frá morgni til kvölds fyrir kylfinga á öllum getustigum, frá byrjendum og upp í landsliðskylfinga. En ég sinni einnig viðgerðum á kylfum og skipti um grip fyrir fólk. Þegar kylfingur er mældur eru nokkuð margar breytur sem skipta máli. Lengd golfkylfunnar, lega hennar, stífleiki skaftsins en það fer einnig eftir getu kylfingsins hversu mörgum þáttum maður hugar að. Einfaldara er að mæla með kylfum fyrir byrjanda og pælingarnar geta verið ólíkar eftir því hversu langt viðskiptavinurinn er kominn í sportinu. Menntunin og reynslan hjálpar manni svo auðvitað við að finna út úr því hvað þarf til að kylfingurinn sjái jákvæðar breytingar hjá sér,“ segir Birgir, sem verður mjög var við þessa stöðugu fjölgun kylfinga á Íslandi sem er í umræðunni. Greinin birtist í sérblaði Viðskiptablaðsins, Golf Expo 2026 .

Share this article