Íslenska tæknifyrirtækið ELVA Golf hefur þróað byltingarkennt greiningarkerfi fyrir golfþjálfun sem sameinar háþróaða tölvusjón, gervigreind og lífaflafræðigreiningu til að bæta árangur kylfinga á öllum getustigum. Kerfið er greiningarkerfi sem notar átta háhraðamyndavélar til að mæla hreyfingar líkamans og kylfunnar í golfsveiflunni með mikilli nákvæmni. Kerfið safnar ítarlegum gögnum og breytir þeim í skýrar og aðgengilegar upplýsingar fyrir kylfinga og golfkennara. Í tilkynningu segir að með þessari tækni geti kylfingar fengið tafarlausa endurgjöf um sveifluna sína og séð nákvæmlega hvernig breytingar á hreyfingum hafa áhrif á árangur. Kerfið gerir kylfingum einnig kleift að byggja þjálfun á mælanlegum gögnum, fylgjast markvisst með framförum og vera hnitmiðaðari í þjálfuninni bæði með og án kennara. Sjá einnig Árshátíð kylfinga á Íslandi Sérstaða ELVA felst í því að ekki þarf að nota skynjara eða merki á líkamanum, sem gerir greininguna bæði einfaldari og þægilegri fyrir notendur, á sama tíma og hún veitir afar nákvæmar upplýsingar um hreyfingar líkamans.