Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skemmtileg nánd við blómin

Read Full Article →

Menning | Bækur | Sunnudagsblað | 28.2.2026 | 7:00 Skemmtileg nánd við blómin Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda og bókamarkaðarins, er ánægð með viðtökurnar. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Bókamarkaðurinn í ár er í Garðheimum við Álfabakka 6. Þar geta allir fundið lesefni við sitt hæfi. B ryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda og bókamarkaðarins, var í óðaönn að verðmerkja bækur í hillum. Börnin okkar fyrirmynd „Við opnuðum í síðustu viku og þetta hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. Við höfum ekki áður verið með opið á sama tíma og vetrarfrí eru í skólum og okkur til mikillar gleði kom mikið af börnum með foreldrum og öðrum ættingjum. Það hafði þau áhrif að barnabókasalan er yfir 50 prósent af heildarsölunni,“ segir hún og að mikill vöxtur sé í sölu frá því í fyrra. „Börnin eru að verða okkar lesandi fyrirmynd en ætti kannski að vera öfugt. Börnin vita alveg hvað þau vilja og svo gaman að leyfa þeim að velja,“ segir hún. „Þetta er í fyrsta sinn sem bókamarkaðurinn er í póstnúmeri 109 og hér erum við í raun miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Svo er svo ótrúlega skemmtileg þessi nánd við blómin. Hér fer vel um okkur.“ „Ég kann að lesa rosa vel“ ​ Baldur Hrafn , sex ára, og Freyja Kristín , fjögurra ára, voru spennt að velja barnabækur. „Ég var að velja Hræðilegt hús og bók um risaeðlur,“ segir Baldur en systir hans er með Fíusól, meðal annars. „Ég valdi svo eina bók fyrir Þorkel Ými, litla bróður minn, því hún er fyrir smábarn,“ segir Freyja. Baldur Hrafn og Freyja Kristín voru alsæl. Ásdís Ásgeirsdóttir „Ég kann að lesa rosa vel og finnst gaman að lesa bækur,“ segir Baldur. „Okkur finnst mjög gaman að lesa bækur!“ segir Freyja. „Mamma, pabbi og amma lesa fyrir okkur og afi segir okkur sögur,“ segja þau að lokum. Svolítið í matreiðslubókum Hjónin Hákon Örn Arnþórsson og Katrín Gunnarsdóttir voru að kaupa bækur. Hjónin Hákon og Katrín höfðu mjög ólíkan smekk á bókum. „Við reynum að kíkja á hverju ári. Ég les mikið og les nánast allt. Fræðibækur, ævisögur og sögur fyrri tíma vekja áhuga minn,“ segir Katrín, en eiginmaðurinn hefur meiri áhuga á byggingarsögum og bókum um arkitektúr og skipulagningu. „Svo er ég svolítið í matreiðslubókunum,“ segir hann og eiginkonan segir hann sjá um eldamennskuna af miklum myndarbrag. ​ Opið er virka daga frá 10-19 og um helgar frá 11-19. Opið verður til 15. mars. Nánar er rætt við gesti bókamarkaðarins í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Vefarinn mikli frá Kópavogi Hann er kjölturakki konungsins „Ég spyr bara Guð“ Lést af völdum slysaskots Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 „Má líta á mig sem ofurhóru“ Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Andlát: Haraldur Sigurðsson Bókamarkaðurinn blómstrar á nýjum stað Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Ég spyr bara Guð“ Hann er kjölturakki konungsins Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Eldarnir framlag Íslands Vefarinn mikli frá Kópavogi Lést af völdum slysaskots Óttinn áþreifanlegur í Röskun Lést af völdum slysaskots Andlát: Haraldur Sigurðsson Gengur morðingi laus? Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Þýskur ráðherra gekk út í fússi „Má líta á mig sem ofurhóru“ Valdasjúkur eins og Trump Samfélagið hrynur til grunna Í BDSM-sambandi við Heathcliff Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Áhugaverð viðtöl Menning Sigraði 150 keppendur í prufuspili Menning Skaut af sér handlegginn Menning Gísli Örn missti fimm kíló í ferlinu Menning Í fyrsta sinn í eigin nafni Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt Mest lesið Í gær Í vikunni Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Vefarinn mikli frá Kópavogi Hann er kjölturakki konungsins „Ég spyr bara Guð“ Lést af völdum slysaskots Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 „Má líta á mig sem ofurhóru“ Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Andlát: Haraldur Sigurðsson Bókamarkaðurinn blómstrar á nýjum stað Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Ég spyr bara Guð“ Hann er kjölturakki konungsins Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Eldarnir framlag Íslands Vefarinn mikli frá Kópavogi Lést af völdum slysaskots Óttinn áþreifanlegur í Röskun Lést af völdum slysaskots Andlát: Haraldur Sigurðsson Gengur morðingi laus? Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Þýskur ráðherra gekk út í fússi „Má líta á mig sem ofurhóru“ Valdasjúkur eins og Trump Samfélagið hrynur til grunna Í BDSM-sambandi við Heathcliff Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Áhugaverð viðtöl Menning Stanslaus lýsing við Grensásveg Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt Menning Skaut af sér handlegginn Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning Í fyrsta sinn í eigin nafni

Share this article