Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Falla frá breytingum um tryggingastærðfræðinga

Read Full Article →

Fjármálaráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi um rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða. Í tilkynningu ráðuneytisins er bent á að fallið sé frá áformum að breyta ákvæðum sem varða tryggingastærðfræðinga. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um hefði umrædd breyting líklega haft í för með sér að lífeyrissjóðir þyrftu að bæta við stöðugildi tryggingastærðfræðings. Sjá einnig Neyða líf­eyris­sjóði að ráða tryggingastærðfræðinga Þegar ráðuneytið greindi fyrr í mánuðinum frá áformum um framlagningu frumvarpsins kom fram að stefnt væri að því að færa kröfur til tryggingarstærðfræðinga til samræmis við kröfur sem gerðar eru til þeirra sem annast samsvarandi verkefni hjá vátryggingafélögum. Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga, nokkrir lífeyrissjóðir, SA og ASÍ gagnrýndu þessa áformuð breytingu og vöruðu nokkrir umsagnaraðilar við því að hún myndi leiða til óþarfa kostnaðar fyrir lífeyrissjóði. Sjá einnig Segir Daða lauma inn „blýklumpi“ Talnakönnun, sem Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra stýrir, sagði í sinni umsögn að ekki væri að ræða samræmingu við EES-reglur heldur sérreglur sem eru líklegar til þess að valda lífeyrissjóðunum kostnaðaraukningu og lakari stjórnsýslu en nú. Í frumvarpsdrögunum sem voru birt í gær kemur fram að efni frumvarpsins sé í samræmi við áformin sem kynnt voru í samráðsgáttinni fyrr í mánuðinum að því frátöldu að í ljósi framkominnar gagnrýni var horfið var frá því að leggja til boðaðar breytingar á ákvæðum sem varða tryggingastærðfræðinga. „Í stuttu máli kom fram í umsögnum að umræddar breytingar væru ekki líklegar til að leiða til ávinnings fyrir íslenska lífeyrissjóði og sjóðfélaga þeirra,“ segir í greinargerð ráðuneytisins um þær umsagnir sem bárust.

Share this article