Framboð íbúða í Kaupmannahöfn hefur aukist verulega eftir mörg ár af miklum verðhækkunum og takmörkuðu úrvali. Í júlí fjölgaði íbúðum á sölu um 7,4% og frá áramótum hefur framboðið aukist um tæp 70%, samkvæmt nýjum tölum Boligsiden. Á síðasta ári hækkaði verð á íbúðum í borginni um 23%. Danski seðlabankinn hefur varað við þróuninni en aukið framboð gæti nú dregið úr verðþrýstingi. Fyrir ári voru 1.160 íbúðir til sölu í Kaupmannahöfn. Í júlí voru þær orðnar 1.750 og um 120 fleiri en mánuðinn áður. „Fyrir ári þráðu fasteignasalar fleiri íbúðir á markað. Nú streyma þær inn. Þetta eru gríðarleg umskipti,“ segir Mira Lie Nielsen, húsnæðishagfræðingur hjá Børsen . Sjá einnig Húsnæðisverð í Danmörku hækkar á methraða Verð gæti tekið að lækka í haust Viðskiptum hefur jafnframt fækkað. Nú seljast rúmlega 500 íbúðir á mánuði í borginni og segir Nielsen að haldi framboðið áfram að aukast á sama hraða og dragi enn frekar úr viðskiptum gæti verð staðið í stað um tíma. Hún útilokar ekki að það taki að lækka strax í haust. Verð hækkar enn, en mun hægar. Tölur fyrir júlí liggja ekki fyrir, en í júní hækkaði það um 0,8%, samanborið við 2,6% í desember. Nielsen bendir á að væntingar hafi mikil áhrif. Telji kaupendur að verð hafi náð hámarki geti margir dregið sig hratt í hlé, enda vilji fáir kaupa á toppnum. Þróunin er hins vegar önnur víðast hvar annars staðar í Danmörku. Framboð íbúðarhúsnæðis á landsvísu dróst saman um 1,2% í júlí. Einbýlishúsum og sumarhúsum á sölu fækkaði í öllum landshlutum. Lise Nytoft Bergmann, aðalgreinandi og húsnæðishagfræðingur hjá Nordea Kredit, segir því ekki lengur hægt að lýsa danska húsnæðismarkaðnum sem einni heild. Hún telur aukið framboð í Kaupmannahöfn geta leitt til stöðnunar eða smávægilegra verðlækkana á hluta markaðarins. Í Árósum er staðan önnur. Þar hefur íbúðum á sölu fækkað lengi og úrvalið er enn lítið. Því þurfi fáa kaupendur til að skapa harða samkeppni og áframhaldandi verðhækkanir séu líklegar.