Innlent | mbl | 23.7.2026 | 8:28 Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár Kólnun virðist vera á fasteignamarkaði. Morgunblaðið/Ómar Setja bókamerki Þinglýstir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 782 í maí síðastliðnum. Það eru færri kaupsamningar en í sama mánuði undanfarin tíu ár, ef frá er talið árið 2023 þegar 731 kaupsamningi var þinglýst. Með öðrum orðum, þá er fasteignamarkaðurinn áfram afar rólegur en kaupsamningar í maí voru færri en undanfarin ár og framboð íbúða til sölu hélt áfram að aukast á milli mánaða. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þar kemur fram að kaup á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hafi beinst í auknum mæli að ódýrari íbúðum á undanförnum fimm árum, samhliða versnandi íbúðalánakjörum og hertum lánþegaskilyrðum. Tæplega sjö mánuði tæki að selja allt núverandi framboð af íbúðum á sölu á höfuðborgarsvæðinu ef miðað er við virkni síðustu þriggja mánaða og hefur sá tími lengst töluvert það sem af er ári. Fasteignasalar telja þó að jafnaði fleiri skoða eignir í fyrstu viku sölutíma í byrjun júlí samanborið við í byrjun júní. Ungmennum í foreldrahúsum fækkað Samkvæmt skýrslu HMS hefur leigumarkaðurinn stækkað lítillega undanfarið samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS, en hlutfall einstaklinga á leigumarkaði mældist 29% í vor samanborið við 28% síðastliðið haust. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að ungmennum í foreldrahúsum fækki og að ungmennum á leigumarkaði fjölgi. Samkvæmt mælingu HMS búa því um 37% einstaklinga á aldrinum 18-24 ára í foreldrahúsum samanborið við um 47% í fyrra. Á sama tíma hefur hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkað úr 34% í 45%. Flest gögn benda til þess að hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hér á landi hafi að jafnaði verið á pari við það sem þekkist að meðaltali í löndum innan Evrópusambandsins. Hlutfallið hefur þó verið talsvert hærra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum þar sem það mælist að jafnaði lægst í alþjóðlegum samanburði. Óvissa á lánamarkaði Þá heldur lánamarkaðurinn áfram að einkennast af óverðtryggðri íbúðalántöku heimilanna hjá bönkunum en verðtryggðri lántöku hjá lífeyrissjóðunum. Undanfarin misseri hafa heimilin valið að festa vexti á íbúðalánum sínum í auknum mæli, en í apríl voru nær 95% allra nýrra fasteignalána á föstum vöxtum. Eftir dóm Hæstaréttar gerðu flestar lánastofnanir tímabundið hlé á afgreiðslu íbúðalána af ýmsum gerðum, sér í lagi lána með breytilegum vöxtum. Á fyrsta fjórðungi þessa árs var lántaka á breytilegum vöxtum enn töluvert minni, en hlutdeild þeirra nam 8% af öllum nýjum lánum samanborið við 46% á sama tíma í fyrra, áður en vaxtadómarnir féllu. Fram undir lok árs 2025 voru verðtryggð lán með breytilegum vöxtum stærsti einstaki lánaflokkurinn, en eftir breytingar á íbúðalánamarkaði í kjölfar vaxtadómanna hefur vægi þeirra minnkað verulega. Í apríl 2026 voru slík lán einungis um 0,8% af nýjum fasteignalánum, samanborið við rúmlega helming allra nýrra lána árið 2024. Samdráttur, atvinnuleysi og gjaldþrot á byggingarmarkaði Þá er byggingarmarkaðurinn farinn að sýna merki hóflegs samdráttar með færri nýskráningum fyrirtækja, fleiri gjaldþrotum og auknu atvinnuleysi. Áætla má að atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sé um 6% á meðan það mælist um 4% í hagkerfinu í heild. Atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur einnig aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu á undanförnum árum en er þó ekki nálægt því að vera jafn mikið og það var á tímum heimsfaraldursins á árunum 2020 til 2021 eða í kjölfar fjármálahrunsins árin 2009 til 2012. Útistandandi lán banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar námu tæplega 438 milljörðum króna undir lok maímánaðar og hafa aukist um tæplega 108 milljarða króna á milli aprílmánaða 2025 og 2026. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Besti maður HM lengi frá? Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár Bróðir Madeleine McCann mætir til leiks „Við nennum ekki að vera í þessu helvíti endalaust“ Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Málarar með tárin í augunum í vætunni Ákæru á hendur Skúla vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Stúlkan fannst heil á húfi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Besti maður HM lengi frá? Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Kaupsamningafjöldi sá lægsti í 10 ár Bróðir Madeleine McCann mætir til leiks „Við nennum ekki að vera í þessu helvíti endalaust“ Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Smæð Íslands okkar mesti styrkur Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Stúlkan fannst heil á húfi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá