- What: Houthi rebels attack Saudi oil tanker
- Impact: Disruption of oil shipping in Red Sea
Hútar í Jemen segjast hafa ráðist á sádiarabískt olíuflutningaskip á norðanverðu Rauðahafi, undan hafnarborginni Yanbu í Sádi-Arabíu. Þeir segja nokkrum skotflaugum hafa verið beitt. Hútar, sem eru hliðhollir Írönum, hafa ráðist á átta olíuflutningaskip síðan þeir tilkynntu um hafnbann á sádiarabískar hafnir 22. júlí. Þeir greindu nýlega frá áformum sínum um að herða árásir á skip á norðanverðu Rauðahafi þar sem yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa stefnt olíuflutningaskipum sínum norðar með ströndinni eftir að hafnbanninu var lýst yfir. Ógnar olíuflutningum Sádi-Araba Bannið hefur ógnað getu Sádi-Araba til að flytja út olíu. Eftir að stríðið í Íran hófst í febrúar og Hormússund svo gott sem lokaðist hefur nær allur útflutningur olíu frá Sádi-Arabíu farið fram í gegnum Yanbu. Úr Rauðahafi eru tvær siglingaleiðir. Önnur liggur um Bab-el Mandeb-sund sem tengir hafið við Indlandshaf, um Adenflóa. Hin er um Súesskurðinn sem tengir hafið við Miðjarðarhaf. Frá mars og fram í miðjan áttfaldaðist flutningur olíu um Bab-el Mandeb-sund miðað við sama tímabil í fyrra. Í júní voru nærri 100 milljón tunnur af olíu fluttar um sundið, samanborið við sjö milljónir í febrúar.