Innlent | mbl | 4.8.2026 | 14:44 Grunur um skotvopn á Akureyri: Hvað gerðist? Ungu mennirnir fimm eru allir búsettir hér á landi en af erlendu bergi brotnir. mbl.is/Þorgeir Setja bókamerki Tengdar fréttir Verslunarmannahelgin Blysin tendruð á Þjóðhátíð í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Myndir: Vel heppnuð hátíð í Eyjum Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk » Fleiri tengdar fréttir Fimm ungir menn í kringum tvítugt voru handteknir á Akureyri um helgina vegna gruns um vopnaburð. Miðuðu þeir því sem síðar kom í ljós að voru eftirlíkingar af skotvopnum að fólki. Atvikið átti sér stað um helgi og var því erfitt að nálgast fullnægjandi upplýsingar um hvað nákvæmlega hefði átt sér stað. Ungu mennirnir eru ekki lengur í haldi. Blaðamaður mbl.is ræddi við Hjalta Axelsson, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, sem rakti atvikið. Frétt af mbl.is Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Veifuðu byssum fyrir framan lögreglumenn „Um tvöleytið á sunnudaginn berst okkur tilkynning um aðila sem eru að meðhöndla skotvopn hérna niðri í bæ,“ segir Hjalti. Um var að ræða fimm einstaklinga í tveimur ökutækjum og fram kom í tilkynningunni til lögreglunnar að allavega einn þeirra hefði verið að meðhöndla skotvopn. Þá hefði eftirgrennslan eftir ökutækjunum hafist og þau síðan fundist mannlaus. Fljótlega eftir það hefðu ökutækin farið á ferðina og í þeim að vísu verið fimm menn. Þá komu lögreglumennirnir sjálfir sem veittu þeim eftirför auga á það sem þeir töldu vera skotvopn í fórum mannanna. „Og á leið sinni frá miðbæ Akureyrar sést til þeirra með skotvopn eða eitthvað sem líkist skotvopni og því er beint út um glugga ökutækisins í átt að fólki sem þeir keyra fram hjá,“ segir Hjalti. Hann bætir við að í aðstæðum sem slíkum sé lítill sem enginn möguleiki á að átta sig á því úr fjarlægð að um sé að ræða eftirlíkingar en ekki raunveruleg skotvopn. Mennirnir voru þá yfirbugaðir og handteknir með aðstoð sérsveitar. Frétt af mbl.is Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Hríðskotabyssur úr plasti „Í framhaldinu af því að þeir eru stöðvaðir og handteknir kemur náttúrulega í ljós hvað þetta er sem þeir voru að veifa út um gluggana.“ Hjalti staðfestir enn fremur að skotvopnin sem tilkynnt var um hafi verið úr plasti og litið út eins og alvöru skotvopn, nánar tiltekið hríðskotabyssur. Hann getur þó ekki staðfest hvaðan byssurnar koma eða hvaðan þær voru keyptar. Hann segir að um sé að ræða eftirlíkingar af vopnum, hvort sem þau séu leikföng eða ekki. Eftirlíkingarnar hafi verið mjög líkar eftirmyndum alvöru vopna. Allir af erlendu bergi brotnir Er enn þá verið að rannsaka þetta athæfi sem brot á vopnalögum? „Já, við erum að vinna málið sem slíkt, hvað svo sem verður verður bara að koma í ljós og við útilokum ekkert í því en málið er enn þá í rannsókn og svo fer það til ákærusviðs til ákvörðunar um framhaldið,“ svarar Hjalti. Allir fimm einstaklingarnir hafa réttarstöðu sakbornings í málinu. Þá eru ungu mennirnir á aldrinum 18 til 22 ára, að sögn Hjalta. Allir eru ungu mennirnir búsettir hér á landi en eru af erlendu bergi brotnir. Tengdar fréttir Verslunarmannahelgin Blysin tendruð á Þjóðhátíð í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Myndir: Vel heppnuð hátíð í Eyjum Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvíst hvort miðinn tengist málinu Grunur um skotvopn á Akureyri: Hvað gerðist? Kæmi ekki á óvart ef liðið tæki gullið Mysterious bright spot appears in photograph taken in Barkárdalur Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Enn um víðtækt framsal valds til ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri „Það er bara allt í gangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Óvíst hvort miðinn tengist málinu Grunur um skotvopn á Akureyri: Hvað gerðist? Kæmi ekki á óvart ef liðið tæki gullið Mysterious bright spot appears in photograph taken in Barkárdalur Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Enn um víðtækt framsal valds til ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki rignt meira í rúm 40 ár Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Eins og að ég væri í návist almættisins Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Maðurinn er kominn í leitirnar Ráðherra vill breyta lögum um .is Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn