- What: Five people were detained during a police operation in Akureyri after firearms were found in two cars
- Impact: A man was suspected of pointing a firearm at another person
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Skotvopn fundust í tveimur bílum. Þetta staðfestir Hjalti Bergmar Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í þeim báðum. Kolbrún Björg Jónsdóttir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Noðurlandi Eystra segir að lögreglu hafi borist tilkynning um mann sem otað hefði skotvopni að öðrum. Kolbrún segir að lagt hafi verið hald á tvenns lags skotvop en að lögregla veitti ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Fimm voru handteknir og fluttir í fangaklefa. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina. Engin meiðsli urðu á fólki. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Níu voru handteknir í fyrstu en átta var sleppt á staðnum. Aðeins einn mannanna reyndist vera með hníf á sér og var hann vistaður í fangageymslu í nótt. Hjalti segir ekki liggja fyrir hvort tengsl séu á milli málanna tveggja en telur það ólíklegt.