Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Fimm látnir og 41 saknað eftir eld í ferju

  • What: Five people killed and 41 missing after a fire on a ferry in Indonesia
  • Impact: Large number of passengers on board, rescue efforts underway
Read Full Article →

Að minnsta kosti fimm eru látnir og 41 er saknað eftir að eldur kviknaði um borð í ferju undan ströndu eyjunnar Madura í Indónesíu. 271 farþegi var í ferjunni sem var á leið frá borginni Surabaya á Austur-Java til Makassar á eyjunni Sulawesi. Myndir sem birtust í indónesíska fjölmiðlinum iNews sýna fjölda fólks í björgunarvestum í björgunarbáti. Á öðru myndefni sjást eldtungur og svartur reykur stíga upp frá ferjunni og fólk klifra úr henni. Basarnas, þjóðarbjörgunarsveit Indónesíu, segir í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum TikTok að eldurinn hafi kviknað milli sex og sjö í morgun. Björgunarsveitin staðfesti síðar að ferjan væri nánast alelda. Mikill eldur er í ferjunni eins og sést á þessari mynd.AP/BASARNAS / BASARNAS

Share this article