Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrettán látnir eftir jarðskjálftann

  • What: 13 people killed in earthquake in Japan.
  • Impact: Ongoing rescue efforts in Kumamoto after 6.8 magnitude quake.
Read Full Article →

Enn er verið að reyna að bjarga fólki úr rústum verslunarmiðstöðvar sem hrundi að hluta í skjálftanum.EPA / JIJI PRESS Að minnsta kosti 13 létust og 36 slösuðust, þar af sjö alvarlega, í jarðskjálfta í suðvesturhluta Japans í gær . Yfir níu þúsund hafast við í 506 fjöldahjálparstöðvum. Upptök jarðskjálftans voru 20 kílómetra suður af Kumamoto, stærstu borg Kyushu, þriðju stærstu eyju Japans. Enn eru margir fastir í rústum verslunarmiðstöðvar í Kumamoto sem hrundi að hluta í skjálftanum og pappírsverksmiðju. Björgunarsveitir vinna hörðum höndum að því að bjarga fólki úr rústum. Bandaríska jarðvísindastofnunin sagði skjálftann upphaflega 7,1 að stærð en breytti því síðan í 6,8.

Share this article