- What: Man assaulted a woman at a bar
- Impact: Victim suffered facial injuries
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í fjórgang vegna líkamsárása í gærkvöld og í nótt. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir eina þeirra hafa átt sér stað á og fyrir utan bar á Laugavegi um sjöleytið í gærkvöld. Karlmaður á sjötugsaldri réðst á konu og veitti henni áverka í andliti. Hann hafi einnig reynt að veitast að starfsfólki. Maðurinn var handtekinn en konan var ekki flutt til aðhlynningar. Þá var ráðist á mann í Hafnarfirði á Strandgötu við Linnetsstíg klukkan fjögur í nótt. Áverkar hans voru minniháttar og árásarmaðurinn á bak og burt er lögreglu bar að garði. Það eigi eftir að koma í ljós hvort árásarþoli hyggist kæra árásina. Enginn handtekinn í heimilisofbeldismálum Lögregla var einnig kölluð út í tvígang vegna heimilisofbeldis. Í annað skiptið hafði eiginmaður ráðist á eiginkonu sína í Breiðholti. Konan óskaði sjálf eftir aðstoð lögreglunnar. Hún var ekki flutt til aðhlynningar. Lögregla mat sem svo að ekki þyrfti að handtaka manninn en gerði rannsóknarlögreglu viðvart. „Hann var áfengisdauður inni í svefnherbergi. Þetta gerðist um ellefuleytið. En við fylgjum þessu að sjálfsögðu eftir sem hluti af verklagi um heimilisofbeldi,“ segir Skúli. Í hitt skiptið voru átök milli foreldris og 18 ára barns. Enginn var handtekinn.