Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Barði mann og stappaði á höfði hans

  • What: Man sentenced for assault and drug offenses
  • Impact: Criminal activity in Iceland
Read Full Article →

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og fleiri brot. Hann réðst á annan mann í íbúð í Reykjavík í febrúar 2023 og barði manninn ítrekað í höfuðið þar til hann féll í gólfið. Þá stappaði hann ítrekað á höfði mannsins sem fékk margvíslega áverka. Maðurinn var líka sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Í eitt skiptið ógnaði hann manni með hníf til að hafa af honum fé. Brotin framdi maðurinn á árunum 2023 til 2025. Dómur var kveðinn upp á miðvikudag. Héraðsdómur Reykjavíkur.RÚV / Ragnar Visage

Share this article