Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Miklir þurrkar á Englandi og í Wales

Read Full Article →

Miklir þurrkar geisa á um helmingi landsvæðis á Englandi og í Wales eftir langvarandi þurrka. The Times segir að breska veðurstofan vari við því að hætta á skógareldum sé mikil, stór svæði á Suður- og Mið-Englandi og í Wales séu orðin mjög þurr. Hiti fór víða yfir 35 stig á miðvikudag í fjórðu hitabylgju sumarsins. Miklar annir hafa verið hjá slökkviliðum og á síðustu tveimur vikum hafa borist útköll vegna elda á 90 mínútna fresti. Miklir skógareldar brunnu í Dunwich Heath í Suffolk á miðvikudag, aðeins tæpum fimm kílómetra frá kjarnorkuverinu Sizewell B. Dunwich Heath er vinsælt útivistar- og göngusvæði og dregur til sín fjölda ferðamanna ár hvert. Ferðamenn í um 200 hjólhýsum og íbúðum urðu að yfirgefa gististaði sína vegna eldanna. Tímabundið vatnsslöngubann Vatnsborð stöðuvatna, áa og lóna hefur lækkað mikið. Vatn er undir meðallagi í um 80% áa og óvenjulítið vatn miðað við árstíma í einum sjötta þeirra. Vatn í miðlunarlónum hefur fallið niður í 75,3% sem er um 7,4% undir meðaltali miðað við árstíma. Sjö vatnsveitur hafa sett á tímabundið bann við vatnsnotkun sem hefur áhrif á 23 milljónir viðskiptavina eða um 40% íbúa Englands. Breska ríkisútvarpið kallar bannið slöngubann. Það er bannað að vökva plöntur, þrífa bíla og glugga og fylla vaðlaugar og sundlaugar svo dæmi séu tekin. Helen Wakeham, forstjóri bresku umhverfisstofnunarinnar, segir að í heitu og þurru veðri eins og nú geti náttúran ekki annað vatnsþörf manna. „Þurrkar tvö sumur í röð er sérstaklega alvarleg staða sem mun hafa langvarandi áhrif á umhverfi okkar, dýralíf og efnahaginn,“ sagði Wakeman. Breska veðurstofan segir litla vætu í kortunum. Hætta á skógareldum geti því aukist enn frekar.

Share this article