Samkvæmt gögnum frá Samtökum breskra brugghúsa- og kráaeigenda (BBPA) hefur 161 krá verið lokað á fyrstu þremur mánuðum ársins í Englandi, Skotlandi og Wales. Þetta kemur fram á vef BBC en þar segir að um sé að ræða 2.400 störf sem hafa tapast. Þessi þróun jafngildir lokun á tveimur börum á dag í landinu það sem af er ári og segir BBPA að tölurnar undirstriki þörfina á langtímabreytingum, þar á meðal endurskoðun á skattlagningu innan ferðaþjónustu- og veitingageirans. Breska ríkisstjórnin tilkynnti fyrr á þessu ári um aukinn stuðning við kráaeigendur í formi lægri fasteignagjalda eftir að greinin varaði við því að frekari skattabreytingar gætu leitt til fleiri lokana. Árið 2025 neyddust alls 336 breskar krár til að loka en á þessu ári eru það Skotar sem hafa orðið verst úti með 41 lokun frá janúar til mars. Wales er hins vegar eina svæðið í Bretlandi þar sem krám hefur fjölgað.