Innlent | mbl | 31.7.2026 | 16:23 Watson fordæmir Gæsluna: „Frelsið áhöfn Bandero“ Yfirlýsingin ber heitið „Frelsið áhöfn Bandero og stöðvið slátrun langreyða,“ og þar virðist Paul Watson sjálfur greina frá því að íslensk og japönsk herskip haldi áhöfn Bandero í gíslingu. Samsett mynd/mbl.is/Hákon/Captain Paul Watson Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Myndir: Skipverjar færðir í land til yfirheyrslu Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út » Fleiri tengdar fréttir Samtök hvalverndarsinnans Pauls Watson gáfu fyrir stundu út yfirlýsingu á Facebook þar sem þau kalla eftir því að skipverjar Bandero, sem hafa verið handteknir fyrir aðför þeirra að hvalveiðiskipinu Hval 9 innan íslenskrar landhelgi í gærkvöldi, verði frelsaðir. Yfirlýsingin ber heitið „Frelsið áhöfn Bandero og stöðvið slátrun langreyða,“ og þar virðist Paul Watson sjálfur greina frá því að íslensk og japönsk herskip haldi áhöfn Bandero í gíslingu og biður hundruðir þúsunda stuðningsmanna sinna um að leggja sér lið við að frelsa skipverja. „Bandero er haldið í gíslingu af tveimur glæpsamlegum hvalveiðiþjóðum,“ skrifar Watson, og vísar þar til Íslands og Japans, en tvö japönsk herskip liggja um þessar mundir við bryggju í Sundahöfn í Reykjavík eins og greint var frá í Morgunblaði dagsins. Frétt af mbl.is Watson tjáir sig: Herferðin mun halda áfram Frétt af mbl.is Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Telur Japani eiga hlut í frelsissviptingu skipverjanna Sú ályktun Watsons að Japanir taki þátt í aðgerðum Landhelgisgæslunnar og gæslu sérsveitarinnar á skipverjum Bandero virðist þó ekki vera á frekari rökum reist en því að stefni japönsku herskipanna beinist að Bandero, og hefur hvergi verið greint frá slíkri íhlutun Japana af hálfu Landhelgisgæslunnar. „Að skipið hafi verið tekið yfir og haldið og viðeigandi króað inni af bæði japanska sjóhernum og íslensku landhelgisgæslunni er fullkomin táknmynd fyrir þá spillingu valdsins sem við erum að ögra,“ segir í yfirlýsingunni. Frétt af mbl.is Myndir: Skipverjar færðir í land til yfirheyrslu Erfitt að eiga við hvalveiðimennina Hann segir það hafa verið afar erfitt að eiga við hvalveiðimennina á sjó vegna verndar Landhelgisgæslunnar, en í meira en mánuð hefur áhöfn Bandero reynt að leita hvalveiðiskip Hvals hf. uppi með litlum árangri, þar til nú. „Markmið herferðar okkar, Aðgerð 86, er að beina alþjóðlegri athygli að áframhaldandi ólöglegum aðgerðum Kristjáns Loftssonar og ólögmætri eftirför hans á friðuðum langreyðum, næststærstu hvalategund jarðar,“ heldur Watson áfram. Frétt af mbl.is Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Kalla sérsveitarmenn „vopnaðan hóp grímuklæddra einstaklinga“ Watson segir samtökin hafa starfað í hálfa öld án þess að valda einum einasta áverka, og tekur það fram að þessi árekstur við íslensku landhelgisgæsluna og hvalveiðimennina hafi hvorki valdið meiðslum á fólki né raunverulegu eignatjóni. „Vopnaður hópur grímuklæddra einstaklinga fór um borð í Bandero á alþjóðlegu hafsvæði,“ segir hann og vísar þar til aðgerða sem sérsveitarmenn gripu til í kjölfar þess að Bandero ógnaði áhöfn Hvals 9 innan landhelgi Íslands. Frétt af mbl.is Birta hljóðbrot: „Munum koma um borð með valdi“ „Áhöfninni er haldið fanginni um borð í Bandero undir vopnuðu eftirliti.“ Sérsveitarmenn gæta áhöfn Banderos, þó almennir lögregluþjónar hafi leyst einhverja þeirra af. mbl.is/Anton Brink Spyr hví stjórnvöld verji hvalveiðimenn Þá greinir Watson frá grimmilegri meðferð hvalveiðiskipa á þunguðum langreyðum með tilfinningaþrungnum hætti, og spyr sig hvers vegna stjórnvöld gæti hvalveiðimanna úti fyrir ströndum Íslands. „Af hverju er Ísland að verja Kristján Loftsson, þennan truflaða einstakling? Af hverju sýnir Ísland opinskátt fyrirlitningu á alþjóðlegum náttúruverndarlögum?“ Frétt af mbl.is Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Biður hundruðir þúsunda að leggja sér lið Undir lokin höfðar Watson til þeirra hundruða þúsunda manna sem vörðu hann á meðan hann var í fimm mánaða gæsluvarðhaldi í grænlensku fangelsi árið 2024 og biður þau um að leggja sér lið við að frelsa áhöfn Banderos. „Nú þurfum við að beina sameiginlegum kröftum okkar að því að frelsa hugrakka áhöfn okkar. Þau eru hetjur hafsins, hvert og eitt, fólk sem stóð fyrir einhverju stærra en það sjálft gegn sadískum gömlum manni sem virðist hafa tangarhald á nokkrum áhrifamiklum stjórnmálamönnum á Íslandi sem eru fúsir til að gera eins og hann vill.“ Að endingu þakka samtökin Landhelgisgæslunni fyrir að „aðstoða við alþjóðlega afhjúpun á glæpsamlegum hvalveiðiaðgerðum Kristjáns Loftssonar“. Frétt af mbl.is Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Tengdar fréttir Hvalveiðar Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Myndir: Skipverjar færðir í land til yfirheyrslu Myndir frá vettvangi: Aðför Bandero og aðgerðir LHG Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekur fram skóna í Hafnarfirði Flottasta svið sem Mugison hefur spilað á Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Watson fordæmir Gæsluna: „Frelsið áhöfn Bandero“ Áfall fyrir Íslandsmeistarana Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Saklaus læknatími endaði með innlögn Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Tekur fram skóna í Hafnarfirði Flottasta svið sem Mugison hefur spilað á Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Watson fordæmir Gæsluna: „Frelsið áhöfn Bandero“ Áfall fyrir Íslandsmeistarana Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Saklaus læknatími endaði með innlögn Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Saklaus læknatími endaði með innlögn Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega Bandero siglir utan í skip Hvals Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“