Innlent | mbl | 2.8.2026 | 10:45 Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats „Þó að það sé þannig að skipum sé heimiluð friðsamleg för innan landhelgi Íslands þá er örugglega erfitt að færa rök fyrir því að í ljósi þeirra ummæla og hótana sem féllu af hálfu Paul Watson-samtakanna að för þessa skips væri friðsamleg,“ segir Ásgeir. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Fer fram á brottvísun og endurkomubann Skýrslutökur í varðskipi Ólíklegt að allir fari í gæsluvarðhald » Fleiri tengdar fréttir Skip Paul Watson-samtakanna, Bandero, óskaði eftir leyfi til þess að koma til hafnar í Faxaflóa að kvöldi síðasta mánudags en var hafnað af hálfu Landhelgisgæslunnar m.a. með vísan í áhættumat sem unnið var af hálfu embættis ríkislögreglustjóra. Í gærkvöldi var greint frá því í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins að áhöfn Bandero hefði ekki fengið leyfi til þess að sigla inn fyrir lögsögu Íslands. Í kjölfarið var unnin frétt á mbl.is með fyrirsögninni Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni. Frétt af mbl.is Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Erfitt að færa rök fyrir friðsamlegri för Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var hins vegar ekki óskað eftir leyfi til þess að sigla inn fyrir lögsögu Íslands heldur koma til hafnar í Faxaflóa. Það sé því rangt að áhöfn Bandero hafi óskað eftir óþarfa leyfi. „Því er hafnað af Landhelgisgæslunni með vísan í þau gögn sem liggja fyrir í málinu, þar á meðal áhættumat sem unnið var af hálfu embættis ríkislögreglustjóra. Þó að það sé þannig að skipum sé heimiluð friðsamleg för innan landhelgi Íslands þá er örugglega erfitt að færa rök fyrir því að í ljósi þeirra ummæla og hótana sem féllu af hálfu Paul Watson-samtakanna að för þessa skips væri friðsamleg,“ segir Ásgeir í samtali við mbl.is. Það hafi því einnig verið rangt með farið í fréttum gærkvöldsins þegar kom fram að Landhelgisgæslan hefði ekki svarað beiðni Bandero. Frétt af mbl.is Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Fleiri svör voru í vinnslu þegar aðgerðir Bandero hófust „Landhelgisgæslunni bárust frekari spurningar með ósk um frekari rökstuðning og það svar var einfaldlega í vinnslu þegar þessar aðgerðir hófust af hálfu áhafnar Bandero, þannig að eins og eðlilegt er þegar fjölmargar spurningar koma þá tekur bara tíma að taka þær saman og svara efnislega,“ segir Ásgeir. Í frétt mbl.is frá í gærkvöldi kemur einnig fram að ekki hafi náðst í Ásgeir við gerð fréttarinnar. Vert er þar að taka fram að um eitt símtal var að ræða sem upplýsingafulltrúinn missti af klukkan 21:10 í gærkvöldi. Frétt af mbl.is Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Tengdar fréttir Hvalveiðar Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Fer fram á brottvísun og endurkomubann Skýrslutökur í varðskipi Ólíklegt að allir fari í gæsluvarðhald » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Níu fíkniefnamál og tvær líkamsárásir í Eyjum Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Fór á kostum í Bandaríkjunum Sveindís fór meidd af velli Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka „Það er bara allt í gangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Alelda sumarhús við Þingvallavatn Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Rekstur við krefjandi aðstæður Einn vann 11 milljónir Unnið að mótefni gegn ofnæminu Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Níu fíkniefnamál og tvær líkamsárásir í Eyjum Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Fór á kostum í Bandaríkjunum Sveindís fór meidd af velli Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Miðar að rjúka út og metsunnudagur í færi Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Alelda sumarhús við Þingvallavatn Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Rekstur við krefjandi aðstæður Einn vann 11 milljónir Unnið að mótefni gegn ofnæminu Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn