Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Alvarlegt dýravelferðarmál að sleppa minkum lausum

  • What: Minks were released in a nature reserve
  • Impact: Could harm local wildlife, especially birds
Read Full Article →

Dýraverndarsamband Íslands segir það alvarlegt dýravelferðarmál að minkum hafi verið sleppt lausum úr Dalsbúi í Mosfellsdal á miðvikudag. Sá mikli fjöldi sem þar var sleppt geti valdið verulegum skaða á lífríkinu í nágrenninu, ekki síst fuglalífi. Í yfirlýsingu áréttar sambandið að ef aðgerðir á búinu hafi verið í nafni dýravelferðar skaði þær málstað dýra. Sambandið styðji ekki þá nálgun. „Þessi verknaður varðar einnig velferð minkanna sjálfra þar sem dýr sem hafa verið alin innandyra geta reynst bjargarlaus í náttúrunni.“ Sambandið tekur undir hvatningu MAST um að dýraeigendur gæti öryggis dýra sem stafað gæti hætta af minknum. „Jafnframt er fólk hvatt til að fara ekki á svæðið í þeim tilgangi að taka þátt í leit eða föngun minkanna. Sú vinna er alfarið á ábyrgð og vegum fagaðila sveitarfélagsins.“ Ekki talið ólíklegt að málið tengist öðrum innbrotum Lögreglan rannsakar málið sem innbrot. Ekki hefur verið staðfest hver er á bak við verknaðinn né í hvaða tilgangi hann var framinn. Í samtali við fréttastofu í gær sagði Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, ekki ólíklegt að innbrotið á Dalsbú og tvö önnur bú fyrr á árinu tengist með einhverjum hætti. Enginn hefur verið kallaður í skýrslutöku vegna innbrota í tvö alidýrabú fyrr á árinu; annars vegar svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi 12. maí og hins vegar alifuglabú Reykjabús í Mosfellsdal 2. júní.

Share this article