Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dýralæknafélag Íslands sendir aðgerðasinnum tóninn

Read Full Article →

Dýralæknafélag Íslands segir að slepping minka af Dalsbúi í gær sé „ekkert annað en alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra og á ekkert skylt við dýravernd eða dýravelferð“. Félagið fordæmir harðlega innbort og skemmdarverk sem unnin hafa verið á búum á síðustu mánuðum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið á Dalsbúi sem innbrot. Eigandi búsins telur að dýraverndunarsamtök standi á bak við verknaðinn. Brotist var inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní og á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum. „Sé markmiðið á einhvern hátt að standa vörð um velferð dýra lýsa slík skemmdarverk gríðarlegu dómgreindarleysi og vanþekkingu þeirra sem að þeim standa. Þetta á bæði við um þau dýr sem sleppt er úr haldi og dýr í nærumhverfinu,“ segir í tilkynningu Dýralæknafélagsins á Facebook . Afleiðingar aðgerðanna komi þvert á móti harðast niður á dýrunum sjálfum. „Dýralæknafélag Íslands lýsir jafnframt yfir stuðningi við Matvælastofnun, lögreglu og aðra þá sem nú takast á við þessar krefjandi aðstæður. Verkefnið er vandasamt og mikilvægt að leitast verði við að leysa það með velferð dýranna að leiðarljós.“

Share this article