Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Apple fellur

  • What: Apple's stock fell due to lower-than-expected revenue
  • Impact: Investors reacted to weaker-than-expected sales figures
Read Full Article →

Gengi tæknifyrirtækja hefur sveiflast mikið undanfarið og hefur Amazon til að mynda hækkað um 14% í dag. Gengi Apple virðist þó ekki ætla að taka þátt í sömu uppsveiflu og hefur lækkað um rúm 9% í dag. Apple lækkaði um 7% í viðskiptum fyrir opnun markaða á föstudag eftir að fyrirtækið birti lakari söluspá en vænst hafði verið. Skortur á íhlutum og hækkandi verð á minniskubbum hefur neytt Apple til að hækka verð á Mac-tölvum og iPad-spjaldtölvum. Sjá einnig Apple hækkar verð um allt að 25% Apple gerir ráð fyrir 9-11% tekjuvexti á fjórða ársfjórðungi, sem lýkur í september, en sérfræðingar höfðu spáð rúmlega 12%. Tim Cook forstjóri sagði skortinn hafa áhrif á fleiri Mac-tölvur, iPhone-síma og iPad-tæki á fjórðungnum. Mikil eftirspurn eftir iPhone 17 og MacBook Neo-tölvunni hefði aukið vandann. Gengissveiflur drægju einnig úr vexti. Heildartekjur jukust þó um 16% á þriðja ársfjórðungi og námu 109,4 milljörðum dala, og hagnaður nam 2,02 dölum á hlut. Tekjur af iPhone-símum jukust um 22% og tekjur af Mac-tölvum um 29%. Sala á iPad var undir væntingum, líkt og þjónustutekjur og sala í Kína. Tim Cook lætur af forstjórastarfi 1. september og John Ternus tekur við. Hans helsta áskorun verður að styrkja stöðu Apple í gervigreind, þar sem fyrirtækið hefur dregist aftur úr keppinautum. Fyrr í vikunni varð Apple að verðmætasta fyrirtæki í heimi og tók sætið af Nvidia. Nú hefur Nvidia aftur náð toppsætinu.

Share this article