Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Margra ára máli lokið með 35 milljóna króna sekt

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 30.7.2026 | 12:34 Margra ára máli lokið með 35 milljóna króna sekt Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tryggingar og ráðgjöf ehf. hefur gert sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands um að ljúka máli sem laut að upplýsingagjöf, skráningu tengsla og greiningu hagsmunaárekstra vegna dreifingar vátryggingatengdra fjárfestingarafurða frá líftryggingafélaginu NOVIS Insurance Company á árunum 2019 til 2023. Með sáttinni greiðir félagið 35 milljónir króna til ríkissjóðs, að því er kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands . Birtu rangar og misvísandi upplýsingar „Niðurstaða fjármálaeftirlitsins var að félagið hefði birt rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina. Þar kom fram að ekkert eignasamband eða eignatengsl væru á milli félagsins og vátryggingafélaga og að félagið væri því algerlega óháð. Þessar upplýsingar voru þó ekki í samræmi við stjórnunar- og eignatengsl á milli félagsins og NOVIS, slóvakísks vátryggingafélags sem hafði starfsleyfi til ársins 2023. Jafnframt upplýsti félagið fjármálaeftirlitið ekki um tengsl sín við NOVIS og framkvæmdi ekki greiningu á hagsmunaárekstrum þegar stofnaðist til framangreindra tengsla við NOVIS, eins og því bar skylda til samkvæmt lögum. Brot félagsins varða ákvæði sem er ætlað að tryggja neytendum öfluga og víðtæka vernd. Markmið reglnanna er að neytendur fái réttar, sanngjarnar, skýrar og ekki villandi upplýsingar og geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu eða vátryggingatengdri fjárfestingarafurð sem hentar þörfum þeirra. Auknar kröfur eru gerðar þegar um er að ræða vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir, líkt og þær sem félagið dreifði frá NOVIS, vegna eðli og eiginleika slíkra afurða, meðal annars flækjustigs og áhættu. Þar undir falla meðal annars kröfur um ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra sem kunna að skapast við dreifingu þeirra,“ segir í tilkynningu Seðlabankans. Frétt af mbl.is Seðlabankinn þarf að endurgreiða 26 milljónir Málinu lokið Starfsleyfi NOVIS, sem var með höfuðstöðvar í Slóvakíu, var afturkallað af slóvakíska Seðlabankanum árið 2023. Með sátt Trygginga og ráðgjafar og Seðlabankans telst málinu nú lokið. Í tilkynningu frá Tryggingum og ráðgjöf kemur fram að félagið hafi samhliða málsmeðferðinni unnið að því að styrkja innra verklag, stjórnarhætti, upplýsingagjöf og greiningu hagsmunaárekstra í samstarfi við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Félagið hafi meðal annars endurskoðað reglur og verklag um hagsmunaárekstra, uppfært upplýsingagjöf til viðskiptavina og Fjármálaeftirlitsins og leiðrétt efni á vefsíðu og í upplýsingaskjölum. Þá hafi viðskiptavinir sem málið tók til verið upplýstir. Frétt af mbl.is Starfsleyfi NOVIS afturkallað Ekki dreift afurðum Novis frá 2023 „Í viðauka við sáttina kemur fram að Fjármálaeftirlitið telji að félagið hafi brugðist við úrbótakröfum eftirlitsins með fullnægjandi hætti. Málið varðar starfsemi sem nær aftur til áranna 2019–2023. Tryggingar og ráðgjöf hefur ekki dreift afurðum NOVIS frá því starfsleyfi félagsins var afturkallað árið 2023. Á þeim tíma hefur félagið lagt áherslu á að styðja viðskiptavini sína vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem sköpuðust í kjölfarið og sinnt áfram þeirri þjónustu sem hvílir á félaginu gagnvart þeim samningum sem enn eru í gildi,“ segir í tilkynningu Trygginga og ráðgjafar. „Við fögnum því að málinu sé nú lokið. Við tókum athugasemdum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands mjög alvarlega og fórum strax yfir verklag okkar í heild, innleiddum þær úrbætur sem kallað var eftir og styrktum enn frekar þá stjórnarhætti og upplýsingagjöf sem eru grunnurinn að traustu sambandi við viðskiptavini okkar. Við munum áfram leggja ríka áherslu á gegnsæi, fagmennsku og ábyrga ráðgjöf í þjónustu okkar við viðskiptavini,“ er haft eftir Ásgerði Ágústsdóttur, framkvæmdastjóra Trygginga og ráðgjafar. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kínverjum fækkar um helming Sigurður Már Jónsson Kerfislægt úrræðaleysi gagnvart ofbeldi í Bretlandi Fleira áhugavert Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár Ming Ting færð í gæsluvarðhald Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Hagnaður Arion dregst saman Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Viðskiptanefnd boðið til Indlands Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Viðskiptanefnd boðið til Indlands Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Ísinn selst enn í vætutíðinni Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Verðbólgan á uppleið HS Orka kaupir Múlavirkjun Greiðir upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Ísinn selst enn í vætutíðinni Aggan bætir öryggið í Færeyjum Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kínverjum fækkar um helming Sigurður Már Jónsson Kerfislægt úrræðaleysi gagnvart ofbeldi í Bretlandi Fleira áhugavert „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Vaknaði við minka í garðinum Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það er áhyggjuefni“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Hagnaður Arion dregst saman Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Viðskiptanefnd boðið til Indlands Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Viðskiptanefnd boðið til Indlands Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Ísinn selst enn í vætutíðinni Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Verðbólgan á uppleið HS Orka kaupir Múlavirkjun Greiðir upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Ísinn selst enn í vætutíðinni Aggan bætir öryggið í Færeyjum

Share this article