Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

FME sektar um­boðsaðila NO­VIS um 35 milljónir

Read Full Article →

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) hefur lokið máli sem varðaði brot Trygginga og ráðgjafar ehf. vegna birtingar rangra og misvísandi upplýsinga til viðskiptavina í tengslum við dreifingu vátryggingatengdra fjárfestingarafurða frá NOVIS á árunum 2019–2023. Málinu lauk með sátt sem felur í sér að félagið greiðir 35 milljónir króna í sekt. „Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við tiltekin ákvæði laga nr. 62/2019 og nr. 30/2004. Félagið hefur þegar lokið úrbótum,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. Í tilkynningu á vef Trygginga og ráðgjafar segir að málið varði starfsemi sem nái aftur til áranna 2019–2023. Félagið hafi ekki dreift afurðum NOVIS frá því starfsleyfi félagsins var afturkallað árið 2023. Sjá einnig Starfsleyfi líftryggingafélagsins NOVIS afturkallað „Á þeim tíma hefur félagið lagt áherslu á að styðja viðskiptavini sína vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem sköpuðust í kjölfarið og sinnt áfram þeirri þjónustu sem hvílir á félaginu gagnvart þeim samningum sem enn eru í gildi.“ „Við fögnum því að málinu sé nú lokið. Við tókum athugasemdum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands mjög alvarlega og fórum strax yfir verklag okkar í heild, innleiddum þær úrbætur sem kallað var eftir og styrktum enn frekar þá stjórnarhætti og upplýsingagjöf sem eru grunnurinn að traustu sambandi við viðskiptavini okkar. Við munum áfram leggja ríka áherslu á gegnsæi, fagmennsku og ábyrga ráðgjöf í þjónustu okkar við viðskiptavini,“ segir Ásgerður Ágústsdóttir , framkvæmdastjóri Trygginga og ráðgjafar. Félagið, sem býður í dag upp á tryggingar frá Allianz Global Life og VPV, segir að samhliða meðferð málsins, sem sé nú endanlega lokið, hafi verið unnið markvisst að því að styrkja innra verklag, stjórnarhætti, upplýsingagjöf og greiningu hagsmunaárekstra í nánu samstarfi við FME. Fjármálaeftirlitið segir að félagið hafi birt rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina. „Þar kom fram að ekkert eignasamband eða eignatengsl væru á milli félagsins og vátryggingafélaga og að félagið væri því algerlega óháð. Þessar upplýsingar voru þó ekki í samræmi við stjórnunar- og eignatengsl á milli félagsins og NOVIS, slóvakísks vátryggingafélags sem hafði starfsleyfi til ársins 2023,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. „Jafnframt upplýsti félagið fjármálaeftirlitið ekki um tengsl sín við NOVIS og framkvæmdi ekki greiningu á hagsmunaárekstrum þegar stofnaðist til framangreindra tengsla við NOVIS, eins og því bar skylda til samkvæmt lögum.“ FME segir brot félagsins varða ákvæði sem sé ætlað að tryggja neytendum öfluga og víðtæka vernd. Markmið reglnanna sé að neytendur fái réttar, sanngjarnar, skýrar og ekki villandi upplýsingar og geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu eða vátryggingatengdri fjárfestingarafurð sem hentar þörfum þeirra. „Auknar kröfur eru gerðar þegar um er að ræða vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir, líkt og þær sem félagið dreifði frá NOVIS, vegna eðli og eiginleika slíkra afurða, meðal annars flækjustigs og áhættu. Þar undir falla meðal annars kröfur um ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra sem kunna að skapast við dreifingu þeirra.“ Tryggingar og ráðgjöf ehf. lýsti yfir vilja sínum til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Málið var lagt fyrir fjármálaeftirlitsnefnd til ákvörðunar sem taldi það að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 35 milljónir króna. Tryggingar og ráðgjöf ehf. eru í eigu Trausta Ágústssonar og Arnars Más Jóhannessonar. Félagið velti 2 milljörðum króna og hagnaðist um 200 milljónir árið 2024. Félagið hefur ekki birt ársreikning vegna ársins 2025.

Share this article