Það að hleypa dýrum úr búrum leysir engan vanda, segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Í loðdýra- svína- og alifuglahaldi eru kerfisbundin vandamál, það að hleypa út úr einu búi breytir því ekki, segir hún. Hún var gestur í þættinum Framundan á Rás 2 í morgun. Talið er að mörg þúsund minkar hafi sloppið úr Dalsbúi í Mosfellsdal í gær. Málið er til rannsóknar lögreglu og grunur er um að brotist hafi verið inn og dýrunum sleppt viljandi. Dýraverndarsamband Íslands sættir sig ekki við þessa nálgun í dýravelferðaraðgerðum. Linda segist geta fullyrt að íslensk dýravelferðarsamtök vinni málefnalega. „Ef um dýravelferðaraðgerð er að ræða í þessu tilviki þá er það bara til að skaða dýrin sem um ræðir, bæði dýrin í umhverfinu og þessi tilteknu dýr og að sjálfsögðu málstað dýravelferðar,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir. Formaður Dýraverndarsambands Íslands segir það ekki dýraverndunaraðgerð að hleypa dýrum úr búrum. Fjöldi minka slapp úr Dalsbúi í gær og grunur liggur á að brotist hafi verið inn og dýrunum sleppt viljandi.