Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lántökukostnaður Bandaríkjanna ekki hærri í 19 ár

Read Full Article →

Lántökukostnaður Bandaríkjanna hefur ekki verið meiri frá 2007 eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum í gær. Vaxtaákvörðunin ýtir undir ótta fjárfesta um að seðlabankanum takist ekki að hemja verðbólguskotið sem rakið er til stríðsins við Íran að sögn Financial Times . Ávöxtunarkrafa 30 ára ríkisskuldabréfa hækkaði um allt að 0,14% í 5,23% eftir vaxtaákvörðunina á miðvikudag, mesta hækkun síðan Trump kynnti svonefnda „frelsisdagstolla“ í apríl 2025. Hækkunin endurspeglar áhyggjur af því að olíuverðshækkun vegna átaka í Mið-Austurlöndum geti fest verðbólgu í sessi. Kevin Warsh seðlabankastjóri sagði bankann ekki munu „hvika“ í baráttunni við verðbólgu, eftir að peningastefnunefndin hélt meginvöxtum í 3,5 til 3,75% fimmta fundinn í röð. Hann hélt því fram að hækkun ávaxtanakrafna skuldabréfa milli júní- og júlífunda bankans hefði í reynd hert peningastefnuna. Viðbrögðin ollu óróa á skuldabréfamarkaði. Lou Brien, hagfræðingur hjá DRW Trading, sagði Warsh hafa gefið til kynna að markaðurinn væri látinn vinna verk bankans sem fjárfestar hefðu ekki sætt sig við. Ávöxtunarkrafa 2 ára ríkisskuldabréfa lækkaði á sama tíma og langtímakrafan hækkaði, sem bendir til væntinga um lága vexti næstu misseri en meiri verðbólgu síðar. Hlutabréf lækkuðu einnig, S&P 500-vísitalan féll um 1,5% og Nasdaq 100-vísitalan um 2,1%. Ávöxtunarkrafa langtímaskuldabréfa í Evrópu hækkaði einnig. Þrír nefndarmenn vildu hækka vexti strax. Sérfræðingar telja að seðlabankinn bíði nýrra gagna þrátt fyrir ótta um vaxandi verðbólgu. Bensín- og dísilverð hefur hækkað hratt frá júnífundinum, átök í Íran hafa hitnað og umferð um Hormússund dregist verulega saman. Warsh sagði bankann tilbúinn að gera það sem þyrfti til að ná verðbólgu, sem mældist 4,1% í maí, niður að 2% markmiðinu. Simon Bowmaker, hagfræðiprófessor við New York háskóla, sagði Warsh standa frammi fyrir erfiðri prófraun eftir því sem ágreiningur innan bankans eykst.

Share this article