Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlut­fall lána með laskað láns­hæfi eykst veru­lega

Read Full Article →

Hlut­fall lána með laskað láns­hæfi hjá Ís­lands­banka jókst úr 1,5% í upp­hafi árs í 2,6% í lok júní. Aukningin nemur 1,1 pró­sentu­stigi, eða um 73%. Bankinn segir breytinguna einkum skýrast af aðstæðum ein­stakra lántak­enda. Virðis­rýrnun fjár­eigna nam tæp­lega 1,7 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, en á sama tíma­bili í fyrra var 399 milljóna króna virðis­rýrnun bak­færð og færð til tekna. Um­skiptin á milli ára nema því rúmum tveimur milljörðum króna. Virðis­rýrnun fjár­eigna nam tæp­lega 1,7 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, en á sama tíma­bili í fyrra var 399 milljóna króna virðis­rýrnun bak­færð og færð til tekna. Um­skiptin á milli ára nema því rúmum tveimur milljörðum króna. Á öðrum árs­fjórðungi einum nam virðis­rýrnunin 454 milljónum króna. Á sama fjórðungi í fyrra var 402 milljóna króna bak­færsla færð til tekna. Áhættu­kostnaður útlána var 13 punktar á árs­grund­velli á fjórðungnum, saman­borið við neikvæða 12 punkta árið áður. Þrátt fyrir þróunina segir Ís­lands­banki gæði lána­safnsins áfram mikil. Um 94% útlána eru tryggð með veðum og veðhlut­föll al­mennt lág. Útlán til við­skipta­vina jukust um 3,6% frá áramótum og námu 1.416 milljörðum króna í lok júní. Það jafn­gildir rúm­lega 7% aukningu frá sama tíma í fyrra. Ís­lands­banki varar jafn­framt við því að þrálát verðbólga geti til lengri tíma litið rýrt gæði lána­safnsins, þótt hún styðji tíma­bundið við vaxta­tekjur bankans.

Share this article