Akkur spáir því að Íslandsbanki hafi hagnast um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Það væri um 9% minni hagnaður en á sama tíma í fyrra, þegar bankinn hagnaðist um 7,2 milljarða króna. Íslandsbanki birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 29. júlí. Samkvæmt afkomuspá Akkurs er gert ráð fyrir að hreinar vaxtatekjur bankans hafi numið 15,2 milljörðum króna á fjórðungnum, samanborið við 13,9 milljarða á sama tíma í fyrra. Það jafngildir 9,4% aukningu milli ára. Vaxtamunur bankans er áætlaður 3,4%, samanborið við 3,3% á öðrum fjórðungi í fyrra. Hreinar þóknanatekjur eru hins vegar taldar dragast saman um 11% milli ára og nema 3,2 milljörðum króna, samanborið við 3,6 milljarða á öðrum fjórðungi í fyrra. Heildarrekstrartekjur bankans eru áætlaðar 18,6 milljarðar króna og hækka um tæp 5% milli ára. Akkur gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður hafi numið 7,8 milljörðum króna á fjórðungnum og aukist um 7,1% frá fyrra ári. Þá er gert ráð fyrir 1,0 milljarði króna í virðisrýrnun, samanborið við 402 milljóna króna jákvæða virðisrýrnunarfærslu á sama tíma í fyrra. Þessi breyting skýrir að stórum hluta hvers vegna hagnaðurinn dregst saman þrátt fyrir auknar rekstrartekjur. Hagnaður fyrir skatta er áætlaður 9,2 milljarðar króna, sem væri tæplega 11% lækkun milli ára. Arðsemi eigin fjár er áætluð 12,3%, samanborið við 13% á öðrum fjórðungi í fyrra. Verðbólga styður vaxtatekjur Í mati Akkurs kemur fram að verðbólga á öðrum ársfjórðungi hafi numið um 1,5%, svipað og á sama tíma í fyrra, en sé lægri en á fyrsta fjórðungi þegar hún var um 2,5%. Það leiði til þess að hreinar vaxtatekjur lækki frá fyrri fjórðungi en hækki engu að síður milli ára. Akkur áætlar vaxtamuninn 3,4%, sem er 10 punktum hærri en á sama tíma í fyrra en 50 punktum lægri en á fyrsta fjórðungi. Greiningarfyrirtækið bendir einnig á að skipulagsbreytingar sem tóku gildi í apríl hafi áhrif á afkomuna. Gert er ráð fyrir að 260 milljóna króna starfslokakostnaður falli til á öðrum fjórðungi. Á móti eigi breytingarnar að skila um einum milljarði króna í árlegum sparnaði í launakostnaði, sem fari að koma fram frá þriðja fjórðungi og verði að fullu kominn fram árið 2027. Akkur segir virðisrýrnun vera svipaða og á fyrsta fjórðungi en breytinguna mikla í samanburði við sama tímabil í fyrra. Þá naut afkoman góðs af jákvæðri virðisrýrnunarfærslu en nú er gert ráð fyrir neikvæðri færslu upp á rúman milljarð króna. Horft til eiginfjár og arðgreiðslugetu Akkur nefnir fimm atriði sem fjárfestar ættu sérstaklega að fylgjast með í uppgjörinu. Þar á meðal er þróun vaxtamunar, sundurliðun þóknanatekna, arðsemi eigin fjár, eiginfjárhlutfall bankans og umframeigið fé miðað við 17,5% markmið, auk þróunar eigna í stýringu hjá Íslandssjóðum. Greiningarfyrirtækið spáir því að Íslandsbanki skili 28,1 milljarðs króna hagnaði á árinu í heild, sem væri 11,3% aukning frá árinu 2025. Hreinar vaxtatekjur eru áætlaðar 59,7 milljarðar króna á árinu og heildarrekstrartekjur 74,4 milljarðar. Arðsemi eigin fjár er áætluð 12,9% á árinu. Akkur er með kaupráðgjöf á bréfum Íslandsbanka. Verðmat greiningarfyrirtækisins hljóðar upp á 181 krónu á hlut, en síðasta lokagengi fyrir birtingu spárinnar var 145 krónur. Það jafngildir 25% mun frá síðasta gengi.