Afkoma Íslandsbanka nam 14,5 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 12,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár jókst úr 11,1% í 13,4%. Á öðrum ársfjórðungi nam afkoman 7,1 milljarði króna og dróst lítillega saman frá sama fjórðungi í fyrra, þegar hún var 7,2 milljarðar. Arðsemi eigin fjár var þó 13,3%, samanborið við 13% árið áður. „Afkoma Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi var traust og í meginatriðum í samræmi við væntingar,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Hann segir afkomu kjarnastarfseminnar sýna að undirstöður rekstrarins séu sterkar. Hreinar vaxtatekjur jukust um 10% frá sama fjórðungi í fyrra, en minni umsvif á innlendum fjármagnsmarkaði og sveiflur á erlendum mörkuðum höfðu neikvæð áhrif á þóknanatekjur. Hreinar vaxtatekjur námu 32,4 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 26,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Vaxtamunur jókst úr 3,2% í 3,7% og segir bankinn hærri verðbólgu skýra stóran hluta aukningarinnar. Hreinar þóknanatekjur námu 6,5 milljörðum króna og drógust lítillega saman milli ára. Á öðrum ársfjórðungi lækkuðu þær um 10%, meðal annars vegna minni tekna af fjárfestingarbankastarfsemi og greiðslumiðlun. Á móti jukust tekjur tengdar lánveitingum og ábyrgðum. Virðisrýrnun jókst Virðisrýrnun fjáreigna nam tæplega 1,7 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra var 399 milljóna króna virðisrýrnun bakfærð til tekna. Bankinn segir breytinguna einkum skýrast af aðstæðum einstakra lántakenda. Hlutfall lána með laskað lánshæfi hækkaði úr 1,5% í upphafi árs í 2,6% í lok júní. Útlán til viðskiptavina jukust um 3,6% frá áramótum og námu 1.416 milljörðum króna í lok júní. Innlán jukust um 7,2% á sama tíma og námu 1.038 milljörðum. Heildareignir bankans námu 1.788 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.728 milljarða í lok síðasta árs. Eigið fé nam 211,1 milljarði króna, samanborið við 225,4 milljarða um áramót. Eiginfjárhlutfall var 23% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,1%. Kostnaður jókst á fjórðungnum Stjórnunarkostnaður nam 8,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi og jókst um 800 milljónir frá sama tímabili í fyrra. Kostnaðarhlutfall bankans hækkaði úr 41% í 43,1% á fjórðungnum. Á fyrstu sex mánuðum ársins lækkaði kostnaðarhlutfallið þó úr 44,1% í 40,7%. Launakostnaður nam 9,7 milljörðum króna og jókst um 807 milljónir. Þar af tengdust 370 milljónir uppsögnum og 671 milljón nýju árangurstengdu launakerfi bankans. Íslandsbanki áformar að fækka stöðugildum um 50 á árinu. Bankinn áætlar að breytingarnar lækki árlegan launa- og starfsmannakostnað um einn milljarð króna þegar áhrifin eru að fullu komin fram árið 2027. Hækka afkomuspá Íslandsbanki hækkar afkomuspá sína fyrir árið og gerir nú ráð fyrir að arðsemi eigin fjár verði yfir 12,5%, samanborið við fyrri spá um um 12%. Bankinn gerir ráð fyrir að kostnaðarhlutfall verði á bilinu 41–43% á árinu og að um helmingur hagnaðar verði greiddur út til hluthafa. Eiginfjárstaða bankans er áfram sterk. Umframeigið fé sem getur nýst til vaxtar, arðgreiðslna eða endurkaupa nam 23,1 milljarði króna í lok tímabilsins. Bankinn greiddi alls 27,8 milljarða til hluthafa á fyrri helmingi ársins með arðgreiðslu og endurkaupum eigin bréfa.