Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rannsókn á kaupum Brims á Lýsi lokið

  • What: Competition authority closes investigation into Brim's acquisition of Lýsi
  • Impact: No significant anti-competitive effects found
Read Full Article →

Samkeppniseftirlitið hefur lokið rannsókn á kaupum Brims hf. á Lýsi hf. Samruni fyrirtækjanna þykir ekki hafa í för með sér skaðleg útilokunaráhrif fyrir keppinauta félaganna. „Kaup Brims hf. á öllu hlutafé Lýsis hf. fela í sér samruna í skilningi samkeppnislaga en samrunaaðilar starfa á ólíkum sölustigum og tengsl þeirra eru fyrst og fremst lóðrétt, einkum á hráefnismarkaði þar sem Brim selur sjávarafla og aukaafurðir en Lýsi og dótturfélög þess kaupa og nota hráefni til frekari vinnslu,“ segir í úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Brim tilkynnti um kaupin í júní með samrunatilkynningu. Samkvæmt Samkeppniseftirlitinu dugði stutt samrunatilkynning bæði vegna þess að samruni fyrirtækjanna er lóðréttur og vegna þess að markaðshlutdeild fyrirtækjanna á viðkomandi mörkuðum er minni en 40%.

Share this article