Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Brims á öllu hlutafé Lýsis fyrir 20 milljarða króna. Eftirlitið telur ekki forsendur til að aðhafast frekar vegna viðskiptanna, að því er kemur fram í tilkynningu Brims til Kauphallarinnar. Brim tilkynnti í september 2025 um að félagið hefði fengið samþykkt kauptilboð í allt hlutafé Lýsi þar sem heildarvirði síðarnefnda félagsins yrði metið á 30 milljarða króna en sú fjárhæð innihélt meðal annars vaxtaberandi skuldir upp á 5,3 milljarða króna. Brim greindi frá því í lok maí um að stjórn félagsins hefði samþykkt kaup á öllu hlutafé í Lýsi fyrir 20 milljarða króna, talsvert lægri fjárhæð en upphaflegur kaupsamningur gerði ráð fyrir. Samhliða tilkynnti Brim um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S og 43% hlut sínum í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi. Sjá einnig Semja um lægra verð fyrir Lýsi og selja í Polar Seafood Kaupverðið mun greiðast til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brimi, þar sem gengi hlutabréfa útgerðarfélagsins er metið á 85 krónur á hlut. Seljendur Lýsis munu eignast í kjölfar viðskiptanna 117.647.058 hluti, eða sem samsvarar um 6% af heildarhlutafé Brims nái félagið að nýta eigin bréf í þágu viðskiptanna. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, er stærsti hluthafi Lýsis með 41% hlut samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins segir að samruninn sé fyrst og fremst lóðréttur. Í leiðbeiningum framkvæmdastjórnar ESB um mat á samrunum sem ekki eru láréttir komi fram að slíkir samningar séu almennt ólíklegri en láréttir samrunar til að raska samkeppni og geti leitt til hagræðingar. „Að virtri stöðu aðilda á viðkomandi mörkuðum samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum, þ.m.t. takmarkaðri hlutdeild Brims í heildarafla og dreifðu framboði hráefnis, verður hvorki séð að sameinað félag hafi getu til að útiloka keppinauta Lýsis frá hráefni (e. input foreclosure) né keppinauta Brims frá mikilvægum viðskiptavinum eða söluleiðum (e. customer foreclosure). Þá liggur fyrir að hluti viðkomandi hráefnis virðist þegar aðkeyptur frá erlendum aðilum.“ Sjá einnig Lýsi tapaði 1,3 milljörðum