Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brent-tunnan komin niður í 85 dali

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð olíu hefur lækkað um 3% í morgun og stendur verð á framvirkum samningum með Brent-hráolíu nú í 85 dölum á tunnu. Verðið hefur ekki verið lægra í meira en viku. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk stjórnvöld ættu í „góðum viðræðum“ við Íran og að möguleiki væri á lausn í deilu ríkjanna. Hann sagði þó að Bandaríkin myndu hefja loftárásir á ný ef samningaviðræður bæru ekki árangur. Írönsk stjórnvöld gáfu einnig út sambærilegar yfirlýsingar um mögulegar gagnárásir. Þá hefur Óman hefur lagt fram tillögu við Íran um fyrirkomulag til að hafa sameiginlega umsjón með siglingum um Hormússund gegn valfrjálsum gjöldum, samkvæmt heimildarmanni Reuters . Olíuverð hækkaði umtalsvert í síðustu viku m.a. vegna ótta um að stríðsátök gætu leitt til lokunar á siglingaleiðinni um Bab el-Mandeb-sundið. Samkvæmt gögnum frá gagnaveitunni Kpler hefur skipaumferð um Bab el-Mandeb-sundið aukist nokkuð á undanförnum fjórum dögum. Skipaumferð um Hormússund er ‏þó áfram lítil.

Share this article