Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2026 | 8:50 Ákvörðun um veiði ekki á rökum reist Náttúrufræðistofnun segir afar lítil gögn um að refur valdi íslenskum bændum tjóni en bændur eru ósammála því og segja skráningu erfiða. Ljósmynd/Ástþór Skúlason Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Náttúruverndarstofnunar segir að þrátt fyrir að íslenskir heimskautarefir hafi löngum verið flokkaðir sem meinvættir og taldir valda bændum miklu tjóni, þá séu einfaldlega ekki til staðar nægilega sterk gögn sem bendi til þess að halda eigi áfram refaveiðum með jafn umsvifamiklum hætti og nú er gert. Greint var frá því í síðustu viku að í nýrri áætlun um refaveiðar fyrir árin 2026-2028 teldi Náttúruverndarstofnun aðkallandi að ráðast í endurskoðun á lagaumhverfi refaveiða vegna þess að forsendur veiðanna væru brostnar þar sem stofnuninni hefðu aðeins borist fáeinar tilkynningar um tjón af völdum refa á síðastliðnum árum. Í áætluninni sagði m.a. að á árunum 2023-2025 hefðu engar tilkynningar borist um tjón af völdum refa frá fjárbændum og aðeins örfáar tilkynningar vegna tjóns í æðarvarpi. Frétt af mbl.is Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Ályktun stofnunarinnar um forsendubrest refaveiða hefur þó verið harðlega gagnrýnd af bændum og grenjaskyttum sem segja erfitt að tilkynna tjón af völdum refa og því sé fráleitt að stofnunin dragi þá ályktun að forsendur refaveiða séu brostnar. Garðar Páll Jónsson, formaður Bjarmalands, félags atvinnuveiðimanna í ref og mink, segir Náttúruverndarstofnun komna langt fram úr sér í þessum efnum. Hann segir skráningarkerfið sem stofnunin styðjist við ekki virka og því sé vandinn ekki sá að refum hafi fækkað heldur hafi bændur einfaldlega hætt að tilkynna um tjón og því sé ályktun stofnunarinnar ekki á rökum reist. „Það hafa margir bændur í kringum mig lent í vandræðum með að tilkynna tjón af völdum refa og vita ekki hvort þeir eiga að leita til Náttúruverndarstofnunar eða sveitarfélagsins. Ég veit um einn sauðfjárbónda sem missti 27 lömb í sauðburði en gat svo hvergi skráð það þannig það má segja að þetta sé orðin algjör hringavitleysa,“ segir Garðar í samtali við Morgunblaðið. Hann segir grenjaskyttur jafnframt búa yfir mikilli þekkingu á refum og að á undanförnum árum hafi borið á því að lifnaðarhættir refa hafi breyst og þeir fært sig milli staða með þeim afleiðingum að minna hafi verið veitt af þeim. „Það er ekki þar með sagt að það séu færri refir á ferðinni. Þeir eru bara annars staðar,“ segir Garðar. Frétt af mbl.is Flókið að tilkynna um tjón vegna refa Kannast ekki við tilkynningavanda Sigrún segist ekki hafa heyrt áður af því að erfiðlega hafi gengið að tilkynna um tjón af völdum refa. Hún bendir á að eyðublöð hafi verið aðgengileg á vef stofnunarinnar en að þau hafi nær ekkert verið nýtt og aðeins sárafáar tilkynningar hafi borist stofnuninni á undanförnum árum. Hún segist þó opin fyrir því að gera frekari tilraunir til þess að afla nauðsynlegra gagna þó að of snemmt sé að segja til um hvort endurskoða þurfi áætlun stofnunarinnar og þá ályktun að forsendur refaveiða séu brostnar. „Það þarf alltaf að réttlæta það þegar gripið er inn í náttúrulega ferla með veiðum, ég nefni t.d. að fálkinn og örninn veiða sér einnig til matar. Refurinn hefur verið talinn trufla búrekstur um langa hríð en gögnin á bak við það eru ekki nægilega skýr,“ segir Sigrún í samtali við Morgunblaðið. „Ég myndi vilja skoða hvað hefur verið því til fyrirstöðu að bændur tilkynni um tjón og ég myndi að sjálfsögðu vilja sjá betri gögn og betri upplýsingar, en lítill tilkynningafjöldi þýðir annað hvort að ekki sé svo mikið um að refurinn sé að bíta og valda tjóni, eða eins og nú hefur verið bent á, að tilkynningar séu ekki að skila sér til okkar.“ Í ljósi þess að stofnunin verji tugum milljóna á ári í endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna refaveiða segir Sigrún einnig eðlilegt að gerð sé skýrari krafa um gögn. „Það er alltaf verið að setja spurningarmerki við allar krónur sem eru notaðar í opinberum rekstri og við þurfum að vita hvað við erum að setja peningana í og af hverju,“ segir Sigrún að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ákvörðun um veiði ekki á rökum reist Skýr skilaboð frá Rio Ferdinand Breikka og styrkja Laugarvatnsveg „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Englendingurinn valdi lið Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Meginþorri umsókna renni í gegn Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Berunesfjölskyldan rekur staðinn saman Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Ákvörðun um veiði ekki á rökum reist Skýr skilaboð frá Rio Ferdinand Breikka og styrkja Laugarvatnsveg „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Englendingurinn valdi lið Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Óvissa um afleiðingar atkvæða Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Meginþorri umsókna renni í gegn Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Meginþorri umsókna renni í gegn Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Berunesfjölskyldan rekur staðinn saman Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann